Staðan á Helguvík Björgvin G. Sigurðsson skrifar 31. mars 2011 06:00 Fyrir tæpum þremur árum fóru framkvæmdir við álver Norðuráls í Helguvík af stað. Grundvöllur framkvæmdanna var orkusölusamningar við HS Orku og Orkuveitu Reykjavíkur. Ári síðar samþykkti Alþingi með góðum meirihluta fjárfestingarsamning vegna álversins. Þar með voru öll skilyrði fyrir framkvæmdunum uppfyllt. Síðan þá hafa framkvæmdirnar tafist og lent í þrátefli. Sveitarfélögin seldu sinn hlut í HS Orku og misstu þar með forræðið yfir áformum þess um orkusölu. Nýir eigendur hafa ekki viljað standa að jafn mikilli orkusölu og hinir fyrri til álversins. Norðurál stefndi í kjölfarið HS Orku í gerðardóm í Svíþjóð. Nú síðast bætast við erfiðleikar OR og vangeta til að standa við sinn hlut orkuöflunarinnar. Mikið er undir í atvinnulegu tilliti, rétt eins og það skiptir miklu máli að kísilverksmiðja Thorsil í Þorlákshöfn verði að veruleika, en þá þarf að virkja á heiðinni. Það sem þarf að gerast á næstu vikum til að framkvæmdirnar fari af stað og nokkur þúsund störf skapist á nokkrum mánuðum með þeim afleiðingum að samdráttur í mannvirkjageiranum svo gott sem sópist í burtu og hið mikla atvinnuleysi á Suðurnesjum gangi niður er m.a.: 1. HS Orka og Norðurál nái samningum og taki málið úr gerðardómi. Það kemur í ljós í næstu viku þegar fulltrúar móðurfélaga þeirra funda í Bandaríkjunum hvort það takist en nú er til þrautar reynt. 2. Sterkir fjárfestar og/eða Landsvirkjun gangi inn í virkjanaáform OR vegna Helguvíkur og annarra nýframkvæmda. Taki samninga um túrbínukaup yfir ásamt orkusamningum við t.d. Thorsil og Norðurál. 3. Landsvirkjun tryggi orku í þriðja áfanga álversins með umframorku í kerfi sínu og þeirri orku sem til ráðstöfunar verður eftir að gerð rammaáætlunar um nýtingu og náttúruvernd lýkur á næstunni. Þetta þarf að ganga fram til að framkvæmdir haldi áfram og nái hástigi. Ég tók málið upp við formann iðnaðarnefndar á Alþingi í vikunni og sagði hann að á næstu dögum myndi nefndin funda með þeim sem að málum standa og freista þess að ná jákvæðri niðurstöðu í það. Mikið er undir og engin ástæða til að afskrifa orkuframkvæmdirnar þótt tafist hafi. Nú er lag að koma hlutunum á hreyfingu og framkvæmdum af stað á ný. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Halldór 20.06.2026 Halldór Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Frelsi ungra Íslendinga til framtíðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Til hamingju með Þjóðarhöll! Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Fyrir tæpum þremur árum fóru framkvæmdir við álver Norðuráls í Helguvík af stað. Grundvöllur framkvæmdanna var orkusölusamningar við HS Orku og Orkuveitu Reykjavíkur. Ári síðar samþykkti Alþingi með góðum meirihluta fjárfestingarsamning vegna álversins. Þar með voru öll skilyrði fyrir framkvæmdunum uppfyllt. Síðan þá hafa framkvæmdirnar tafist og lent í þrátefli. Sveitarfélögin seldu sinn hlut í HS Orku og misstu þar með forræðið yfir áformum þess um orkusölu. Nýir eigendur hafa ekki viljað standa að jafn mikilli orkusölu og hinir fyrri til álversins. Norðurál stefndi í kjölfarið HS Orku í gerðardóm í Svíþjóð. Nú síðast bætast við erfiðleikar OR og vangeta til að standa við sinn hlut orkuöflunarinnar. Mikið er undir í atvinnulegu tilliti, rétt eins og það skiptir miklu máli að kísilverksmiðja Thorsil í Þorlákshöfn verði að veruleika, en þá þarf að virkja á heiðinni. Það sem þarf að gerast á næstu vikum til að framkvæmdirnar fari af stað og nokkur þúsund störf skapist á nokkrum mánuðum með þeim afleiðingum að samdráttur í mannvirkjageiranum svo gott sem sópist í burtu og hið mikla atvinnuleysi á Suðurnesjum gangi niður er m.a.: 1. HS Orka og Norðurál nái samningum og taki málið úr gerðardómi. Það kemur í ljós í næstu viku þegar fulltrúar móðurfélaga þeirra funda í Bandaríkjunum hvort það takist en nú er til þrautar reynt. 2. Sterkir fjárfestar og/eða Landsvirkjun gangi inn í virkjanaáform OR vegna Helguvíkur og annarra nýframkvæmda. Taki samninga um túrbínukaup yfir ásamt orkusamningum við t.d. Thorsil og Norðurál. 3. Landsvirkjun tryggi orku í þriðja áfanga álversins með umframorku í kerfi sínu og þeirri orku sem til ráðstöfunar verður eftir að gerð rammaáætlunar um nýtingu og náttúruvernd lýkur á næstunni. Þetta þarf að ganga fram til að framkvæmdir haldi áfram og nái hástigi. Ég tók málið upp við formann iðnaðarnefndar á Alþingi í vikunni og sagði hann að á næstu dögum myndi nefndin funda með þeim sem að málum standa og freista þess að ná jákvæðri niðurstöðu í það. Mikið er undir og engin ástæða til að afskrifa orkuframkvæmdirnar þótt tafist hafi. Nú er lag að koma hlutunum á hreyfingu og framkvæmdum af stað á ný.
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar