Upphafin sýning Inga Jónsdóttir skrifar 31. mars 2011 06:00 Vegna ásakana um að Listasafn Árnesinga hafi ritskoðað sýningu sem setja átti upp í safninu og beitt þöggun á viðfangsefnið er rétt að eftirfarandi komi fram. Safnið réð Hannes Lárusson sem sýningarstjóra að sýningu þar sem skoða átti m.a. ákveðinn hluta safneignar. Af sýningunni varð ekki vegna samstarfsörðugleika sem náðist ekki að leysa tímanlega. Inntak sýningarinnar breyttist í meðförum sýningarstjóra og tveggja aðstoðarmanna sem hann fékk til liðs við sig. Listasafn Árnesinga úthlutar ekki sölum til afnota, en velur sýningar og viðfangsefni og ber ábyrgð á starfseminni. Ég gerði ekki athugasemdir við breytt inntak og fannst áhugavert að taka inn í safnið sýningu þar sem umræðuefni samfélagsins væri tekið fyrir; birtingarmyndir góðæris og hruns. Þarna kann ég hafa brugðist fyrir hönd safnsins að hvarfla frá settri stefnu því brátt kom í ljós að sýningarstjóri gerði ekki greinarmun á hlutverkunum sýningarstjóri og listamaður sem þátttakandi í sýningunni. Hann virtist virkari sem listamaður ásamt samstarfsmönnunum tveimur og safninu var haldið frá hugmyndavinnu, útgjaldahlið, sýningarskrá og boðskorti. Segja má að rödd safnsins hafi þar verið þögguð, ef eitthvað var þaggað. Þegar ég gerði athugasemdir við framkvæmdir þá völdu þau að líta á það sem höfnun á sýningunni og ekki tilbúin að endurskoða þá afstöðu. Það er eftirsóknarvert og áhugavert að láta reyna á þanþol marka innan og utan við menningarstofnanir og það gera listamenn gjarnan. Slíkar tilraunir held ég að verði að eiga sér stað í samræðu við stofnanirnar og þá sem þar starfa. Annars er hætta á að til verði misskilningur sem festir eldri mörk í sessi í stað þess að frjósöm umbreyting geti átt sér stað. Ein ástæða þess að ásökunum var ekki svarað fyrr, er sú að 17. nóvember sl. barst safninu afsökunarbréf frá Hannesi og aðstoðarmönnunum. Ég valdi að líta á það sem heiðarleg samskipti, en þar segir m.a.: „Í samskiptum okkar við starfsmann Listasafns Árnesinga fórum við yfir strikið í kröfum og væntingum, sama á við um samskipti við listamenn og aðra hlutaðeigandi innan sem utan listaheimsins. Fljótfærni var af okkar hálfu að fara með þetta viðkvæma mál í fjölmiðla án þess að ráðfæra okkur við viðeigandi fagmenn og vega þar jafnvel að starfsheiðri fólks sem unnið hefur í þágu listamanna árum saman." Það er miður að samstarf náðist ekki, en sýning fæddist engu að síður og hófst í fjölmiðlum og umræðunni. Þar hafa höfundarnir náð að baða sig ljósi og upphefja sýninguna á kostnað safnsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Vegna ásakana um að Listasafn Árnesinga hafi ritskoðað sýningu sem setja átti upp í safninu og beitt þöggun á viðfangsefnið er rétt að eftirfarandi komi fram. Safnið réð Hannes Lárusson sem sýningarstjóra að sýningu þar sem skoða átti m.a. ákveðinn hluta safneignar. Af sýningunni varð ekki vegna samstarfsörðugleika sem náðist ekki að leysa tímanlega. Inntak sýningarinnar breyttist í meðförum sýningarstjóra og tveggja aðstoðarmanna sem hann fékk til liðs við sig. Listasafn Árnesinga úthlutar ekki sölum til afnota, en velur sýningar og viðfangsefni og ber ábyrgð á starfseminni. Ég gerði ekki athugasemdir við breytt inntak og fannst áhugavert að taka inn í safnið sýningu þar sem umræðuefni samfélagsins væri tekið fyrir; birtingarmyndir góðæris og hruns. Þarna kann ég hafa brugðist fyrir hönd safnsins að hvarfla frá settri stefnu því brátt kom í ljós að sýningarstjóri gerði ekki greinarmun á hlutverkunum sýningarstjóri og listamaður sem þátttakandi í sýningunni. Hann virtist virkari sem listamaður ásamt samstarfsmönnunum tveimur og safninu var haldið frá hugmyndavinnu, útgjaldahlið, sýningarskrá og boðskorti. Segja má að rödd safnsins hafi þar verið þögguð, ef eitthvað var þaggað. Þegar ég gerði athugasemdir við framkvæmdir þá völdu þau að líta á það sem höfnun á sýningunni og ekki tilbúin að endurskoða þá afstöðu. Það er eftirsóknarvert og áhugavert að láta reyna á þanþol marka innan og utan við menningarstofnanir og það gera listamenn gjarnan. Slíkar tilraunir held ég að verði að eiga sér stað í samræðu við stofnanirnar og þá sem þar starfa. Annars er hætta á að til verði misskilningur sem festir eldri mörk í sessi í stað þess að frjósöm umbreyting geti átt sér stað. Ein ástæða þess að ásökunum var ekki svarað fyrr, er sú að 17. nóvember sl. barst safninu afsökunarbréf frá Hannesi og aðstoðarmönnunum. Ég valdi að líta á það sem heiðarleg samskipti, en þar segir m.a.: „Í samskiptum okkar við starfsmann Listasafns Árnesinga fórum við yfir strikið í kröfum og væntingum, sama á við um samskipti við listamenn og aðra hlutaðeigandi innan sem utan listaheimsins. Fljótfærni var af okkar hálfu að fara með þetta viðkvæma mál í fjölmiðla án þess að ráðfæra okkur við viðeigandi fagmenn og vega þar jafnvel að starfsheiðri fólks sem unnið hefur í þágu listamanna árum saman." Það er miður að samstarf náðist ekki, en sýning fæddist engu að síður og hófst í fjölmiðlum og umræðunni. Þar hafa höfundarnir náð að baða sig ljósi og upphefja sýninguna á kostnað safnsins.
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun