Playmo-leikurinn í Ráðhúsinu Guðný Einarsdóttir skrifar 24. mars 2011 10:39 Nú liggja fyrir tillögur um sameiningar skóla og leikskóla í Reykjavík. Málefnið er ofarlega á baugi í umræðunni og eru gagnrýnisraddir háværar. Það er heldur ekki að ástæðulausu. Ég hef sjaldan séð eins vanhugsaðar og illa unnar tillögur um nokkurt málefni. Sem íbúi í Efra-Breiðholti og foreldri barns á leikskólanum Hraunborg finnst mér ég ekki geta orða bundist lengur varðandi tillöguna um sameiningu á leikskóla barnsins míns við leikskólann Ösp. Hvað er það nákvæmlega sem gerir það hagkvæmara fyrir reksturinn að sameina þessa tvo skóla? Ég hef engin svör séð frá ráðamönnum við því. Óhagkvæmnin er hins vegar hrópandi augljós. Svo dæmi sé tekið er vegalengdin milli þessara tveggja skóla 810 metrar sé ekið í bíl. Á leiðinni er fjölfarin strætóleið og akstursleið m.a. til og frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti, sundlauginni og íþróttafélaginu Leikni. Umferðin er oft mjög mikil og auðveldlega myndast umferðarteppur á þessari leið. Ég sé alls ekki að það skili neinum sparnaði að sameina skóla þar sem svo löng vegalengd er á milli. Það hlýtur að kosta meira umstang og rót fyrir starfsfólkið og kalla á mörg ópraktísk verkefni sem ekki tengjast starfinu með börnunum nokkurn skapaðan hlut. Ef sparnaðurinn felst í því að fækka starfsfólki er erfitt að sjá hvernig það á að vera hægt þegar svo langt er á milli leikskólanna. Það þarf t.d. einn heilan starfsmann í að keyra matinn á milli skólanna ef aðeins á að elda á öðrum skólanum svo eitthvað sé nefnt. Og ef sparnaðurinn felst fyrst og fremst í því að fækka um þennan tiltekna starfsmann gefur það líka augaleið að þá er verið að skapa enn meiri óstöðugleika og rót. Í tillögunum felst nefnilega að segja upp leikskólastjórunum. Eru þeir ekki fólkið með mestu reynsluna og menntunina inni á leikskólunum? Eru þeir ekki starfsmennirnir sem hafa verið lengst í bransanum? Ef þeim er öllum sagt upp og færri ráðnir í staðinn hlýtur það að bjóða upp á óstöðugleika í starfsliðinu sem er eitthvað sem foreldrar barna á leikskólum kjósa síst af öllu. Allir vita hversu mikilvægt það er fyrir börnin að það séu ekki sífelldar mannabreytingar á leikskólunum. Það er engu líkara en að ráðamenn hafi hugsað þessar sameiningar eins og einfaldan Playmo-leik. Playmo-kallarnir hætta ekkert að brosa þó að þeir séu hreyfðir eitthvað smávegis til. Því hefur verið haldið fram að ennþá verði til störf fyrir alla sem sagt verður upp inni á leikskólunum og þar með sé málið leyst og allir brosandi ennþá eins og í Playmo-leiknum. Vandamálið er hins vegar að þetta snýst um lifandi fólk en ekki Playmo-kalla. Mun gott starfsfólk sækjast eftir því að vinna áfram á leikskólunum eftir svona niðurlægingarherför sem þessar uppsagnir koma til með að vera? Á fundi foreldra í Breiðholtsskóla var spurt hversvegna Hraunborg og Hólaborg ættu ekki frekar að sameinast og meðal svaranna sem fengust við því voru þau að þá stæði Öspin eftir ein sem lítill leikskóli á þessu svæði. Ég spyr þá á móti, hvers vegna mega ekki vera litlir leikskólar á þessu svæði? Afhverju þarf að sameina alla leikskólana hér upp í 6-7 deilda leikskóla meðan ekki er hróflað við litlum leikskólum í öðrum hverfum? Er ekki bara kostur að það séu til litlir leikskólar í bland við þá stærri, líka hér í Efra-Breiðholti? Það er ótal spurningum ósvarað í þessu ferli sem sýnir það auðvitað fyrst og fremst hversu vanhugsaðar og illa unnar þessar tillögur eru. Þær hafa auk þess verið mjög illa kynntar og ekki hefur verið tekið nægilegt tillit til hvers skóla fyrir sig, heldur öllu ýtt af stað í einu og allt sett undir einn hatt. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Ég skora á ráðamenn borgarinnar að hverfa frá þessum tillögum og láta börnin okkar í friði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen Skoðun Dregur til tíðinda Hannes Pétursson Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Á úfnum sjó eða lygnum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Fæðingarorlof á ekki að kosta fólk starfið Árni B. Björnsson,Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Er 25% lækkun á matvælum raunhæf með evru? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Aðflæðisvandinn Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fólkið sem þurrkaði út heilbrigðiseftirlitið Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Sjálfbærni sem drifkraftur verðmætasköpunar Jón Gunnarsson,Sara Júlía Baldvinsdóttir,Helga Margrét Óskarsdóttir,Júlía Huang,Jóhanna Sól Erlendsdóttir,Ólöf Helga Þórmundsdóttir,Alda Marín Jóhannsdóttir,Jóna Rut Vignir,Pétur Melax,Rakel Sara Magnúsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Vex Ísland í eina átt? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Dregur til tíðinda Hannes Pétursson skrifar Skoðun Þegar strákar og menn hætta að svara Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Mikilvægir áfangar í orkumálum Vestfjarða Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar Skoðun Gervigreind í ráðningum - stuðningur eða staðgengill? Helga Jóhanna Oddsdóttir skrifar Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Hraðtíska kallar á aðgerðir Norðurlanda Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Þegar orðaslagurinn stríðir við þjóðarsálina Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson Skoðun
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Milli tveggja kosta - Efnahagslegt staðreyndatékk á framtíð Íslands Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Sjálfbærni sem drifkraftur verðmætasköpunar Jón Gunnarsson,Sara Júlía Baldvinsdóttir,Helga Margrét Óskarsdóttir,Júlía Huang,Jóhanna Sól Erlendsdóttir,Ólöf Helga Þórmundsdóttir,Alda Marín Jóhannsdóttir,Jóna Rut Vignir,Pétur Melax,Rakel Sara Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Millistjórnendur standa frammi fyrir stærstu breytingu vinnumarkaðarins Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar
Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar
Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar
Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson Skoðun