Íslenski boltinn

Matthías bað FH um að kalla sig heim

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Matthías í leik með FH.
Matthías í leik með FH. Mynd/Valli
Matthías Vilhjálmsson bað félag sitt, FH, um að kalla á sig heim frá enska félaginu Colchester þar sem hann var í láni.

Matthías fór utan fyrr í vetur og kom við sögu í þremur leikjum í ensku C-deildinni, ávallt sem varamaður. Hann var ekki ánægður með stöðu sína hjá liðinu en í viðtali við vefsíðuna fhingar.net segir hann reynsluna hafa engu að síður verið lærdómsríka.

„Ég hefði að sjálfsögðu viljað fá fleiri tækifæri en það er ekkert gefið í þessum heimi," sagði Matthías.

„Eftir að hafa lagt höfuðið í bleyti seinustu vikur þá taldi ég það hárrétt í stöðunni að koma heim aftur og æfa eins vel og ég gæti með FH í staðinn fyrir að vera á bekknum eða fyrir utan hóp Colchester United," bætti hann við.

„Æfingar voru því afar rólegar og taktískar og ferðalögin ekki þess virði að vera þarna ef ég fengi engin tækifæri sem ég taldi mig að sjálfsögðu eiga skilið miðað við frammistöðu liðsins þann tíma sem ég var þarna. Liðið skoraði 11 mörk í þeim 12 leikjum sem ég var til taks og töpuðu hverjum útileiknum á fætur öðrum. Sóknarspilið gekk ekki vel og ég taldi mig eiga að fá séns en þjálfaranum greinilega ekki. Þannig að eftir nokkra umhugsun bað ég FH um að kalla mig heim."

„Ég er fyrst um fremst ótrúlega glaður að vera kominn heim aftur og geta einbeitt mér algjörlega að FH núna og njóta fótboltans í sumar. Skilaboðin til stuðningsmannana eru þau að ef við leikmenn verðum jafngóðir og seinustu ár og stuðningsmennirnir líka að þá verður þetta sumar frábært."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×