Um samanburð Eva Einarsdóttir skrifar 5. febrúar 2011 11:00 Í umræðunni um fyrirhugaðar lækkanir á framlögum til tónlistarskóla í Reykjavík að undanförnu hefur gætt mikils misskilnings um framlög Reykjavíkurborgar til íþróttamála. Margir hafa valið að etja saman tónlistarnámi annars vegar og íþróttum hins vegar. Þessi aðferð er á kostnað barna sem njóta góðs af framlögum Reykjavíkur til tónlistarmenntunar og íþróttaiðkunar. Það er miður að talsmenn tónlistarinnar hafa valið þessa leið, því hún stuðlar engan veginn að því að auka skilning á gildi tónlistarnáms. Stór orð hafa fallið í tengslum við framlög til íþróttafélaga í Reykjavík. Staðreyndin er sú að aukning sem kemur fram í fjárhagsáætlun til íþróttamála er vegna nýs húsnæðis m.a. í Norðlingaholti og Egilshöll sem byggir á eldri ákvörðunum og Reykjavíkurborg þarf að standa skil á. Að setja samasemmerki á milli þess húsnæðis og stórfelldra hækkana til íþróttamála er álíka rökleysa og að segja að framlag til tónlistar í Reykjavík hafi hækkað um 391 milljón í ár með tilkomu Hörpu. Steinsteypumaraþon og útþensla byggðar síðasta áratug er staðreynd sem við verðum því miður að lifa með en vonandi læra af. Bein framlög til íþróttafélaga á fjárhagsáætlun á þessu ári eru um 680 milljónir sem skiptast á milli 43 félaga en alls eru félögin 70 í heild. Framlagið er skilyrt til nota í barna- og unglingastarfi; þjálfara, íþróttafulltrúa, rekstarkostnað húsnæðis og annað sem tengt er starfi 16 ára og yngri. Framlög til íþróttafélaga lækka um 5-11% á milli ára og hafa lækkað mikið milli ára frá efnahagshruni. Mikilvægt er líka að nefna það mikla sjálfboðaliðastarf foreldra sem er forsenda fyrir að íþróttastarf gangi upp í mörgum félögum. Í íþróttafélögum Reykjavíkur eru skráðir iðkendur 37.000, þar af 20.000 undir 18 ára. Tónlistarskólar í Reykjavík eru 18 og þar stunda 2.900 nemendur tónlistarnám, þar af rúmlega 2.400 undir 18 ára. Tónlistarskólarnir í Reykjavík fá samkvæmt fjárhagsáætlun úthlutað 640 milljónum. Samanburður á beinum framlögum í starfsemi er því fremur erfiður þar sem þessir hópar eru mjög misstórir og sinna starfi sínu á mjög ólíkan hátt. Framlög til bæði tónlistarskóla og íþróttafélaga koma af almannafé og það þarf að gera þá kröfu að farið sé vel með það og því varið á sem bestan hátt. Að því sögðu vil ég þó um leið þakka ötulu tónlistarfólki og unnendum fyrir að standa vörð um sína hagsmuni og vekja upp umræðu. Á tímum sem þessum er svo mikilvægt að hagsmunasamtök séu öflug og minni okkur í pólitíkinni á að vanda til verka þannig að þegar betur árar þá sé forgangsröðunin ekki gleymd. Þetta eru ólíkir hlutir svo sannarlega, tónlist og íþróttir, en eiga þó ýmislegt sameiginlegt, eins og það að fólk gefur hug sinn og hjarta þessu hvort tveggja. Sumir leggja þetta fyrir sig sem atvinnu á meðan aðrir sinna því í frístundum sínum. Bæði eru hluti af okkar menningu og veita öðru fólki gleði og innblástur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun