Íslenski boltinn

KR til Færeyja en ÍBV fékk írska mótherja

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Rúnar Kristinsson er þjálfari KR.
Rúnar Kristinsson er þjálfari KR.
KR mætir ÍF frá Færeyjum í 1. umferð Evrópudeild UEFA í fótbolta karla og ÍBV mætir St. Patricks frá Írlandi en dregið var í morgun.  Bikarmeistaralið FH situr hjá í fyrstu umferð og skýrist það síðar í dag hvaða lið Hafnfirðingar fá í keppninni.

Fyrri leikur ÍBV og írska liðsins fer fram á Hlíðarenda, heimavelli Valsmanna þann 30. júní og síðari leikurinn er á Írlandi viku síðar.

Sömu sögu er að segja af KR, fyrri leikurinn á að fara fram hér á landi þann 30. júní samkvæmt vef UEFA og síðari leikurinn þann 7. júlí í Færeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×