Íslenski boltinn

Keflavík og Fjölnir í átta liða úrslit

Guðmundur Marinó Ingvarsson á Ásvöllum skrifar
Lærisveinar Willums Þórs Þórssonar hjá Keflavík eru komnir í átta liða úrslit Valitor-bikarsins í knattspyrnu eftir fínan útisigur á Haukum, 1-3, í kvöld.

Keflvíkingar byrjuðu leikinn með miklum látum því Guðmundur Steinarsson kom þeim yfir á fjórðu mínútu. Andri Steinn Birgisson bætti síðan marki við á 21. mínútu og Keflvíkingar í vænlegri stöðu.

Haukar hresstust í kjölfarið og Hilmar Trausti Arnarsson náði að minnka muninn fyrir hlé. Það var síðan Jóhann Birnir Guðmundsson sem gerði út um leikinn korteri fyrir leikslok.

Fjölnir komst einnig áfram í átta liða úrslit í kvöld með 3-2 sigri á Hamri í fjörugum leik.

Illugi Þór Gunnarsson skoraði tvö marka Fjölnis og Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði einnig. Arnþór Kristinsson og Ragnar Sigurjónsson skoruðu mörk Hamars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×