Umfjöllun: Draumabyrjun Keflavíkur gerði útslagið Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 20. júní 2011 22:20 Haukar skora hér mark sitt í leiknum. Mynd/HAG
Keflavík er komið í átta liða úrslit Valitor bikarsins í fótbolta eftir góðan 3-1 sigur á Haukum á Ásvöllum í kvöld. Leikurinn var bráðfjörugur og skemmtilegur og ekki síst spennandi þó Keflavík hafi fengið óskabyrjun og verið komið í 2-0 eftir rétt rúmar 20 mínútur. Haukar minnkuðu muninn þegar rúmar 10 mínútur voru til hálfleiks og fengu færi til að jafna en Ómar Jóhannsson stóð vaktina vel í markinu auk þess sem varnarlína Keflavíkur takmarkaði færi Hauka við hálffæri. Þrátt fyrir að vera meira með boltann á löngum köflum og halda Keflavík að mestu vel frá marki sínu gerði Keflavík út um leikinn þegar korter var eftir af honum eftir skyndisókn en það var þriðja skot Keflavíkur að marki og öll höfnuðu þau í netinu. Það voru helst föst leikatriði sem sköpuðu usla við mark Hauka en Keflavík vann fyrir sigrinum með mörkum sínum í upphafi leiks og gera það sem þeir gera best, halda forystu með þéttum leik þar sem leikmenn eru yfirvegaðir í sínum aðgerðum og takmarka möguleika andstæðinganna við mark sitt. Haukar geta engu að síður verið ánægðir með margt í sínum leik. Liðið var síst lakari aðilinn en það er erfitt að sigra þegar lið lenda 2-0 undir í upphafi leiks.Haukar-Keflavík 1-3 0-1 Guðmundur Steinarsson ´4 0-2 Andri Steinn Birgisson ´21 1-2 Hilmar Trausti Arnarsson ´33 1-3 Jóhann Birnir Guðmundsson ´75 Dómari: Þorvaldur Árnason Skot (á mark): 9-4 (5-4) Varið: Daði 1 – Ómar 4 Hornspyrnur: 4-5 Aukaspyrnur fengnar: 14-11 Rangstöður: 1-6
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira