Icelandair og JetBlue Airways hefja samstarf í dag 3. maí 2011 07:24 Á myndinni eru Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair og Dave Barger forstjóri JetBlue, í miðið, og með þeim Scott M. Laurence, framkvæmdastjóri leiðakerfisstjórnunar hjá JetBlue og Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.
Icelandair og bandaríska flugfélagið JetBlue Airways hafa kynnt samstarf flugfélaganna sem meðal annars felur í sér sölu og farseðlaútgáfu á flugleiðum hvors annars. Viðskiptavinir Icelandair geta nú keypt einn farseðil frá Íslandi til þeirra tuga bandarísku borga sem JetBlue flýgur til og jafnframt geta viðskiptavinir JetBlue keypt miða til Íslands og Evrópulanda með flugi Icelandair. Í tilkynningu segir að forystumenn félaganna undirrituðu samninginn í New York og hann tekur gildi í dag. „Þetta er mjög ánægjulegt. JetBlue nýtur mikilla vinsælda og er á stuttum tíma orðið stærsta flugfélagið sem flýgur innanlands í Bandaríkjunum út frá Boston og New York. Það gerir afar fáa samstarfssamninga við önnur flugfélög og við væntum þess að samningurinn styrki leiðakerfi okkar og þjónustu“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. JetBlue er lággjaldaflugfélag sem hefur skapað sér sérstöðu með óvenjulegri og góðri þjónustu og er einkum þekkt fyrir að bjóða upp á beinar sjónvarpsútsendingar í vélum sínum, leðursæti og mikið sætabil. Það flýgur til 64 borga í Bandaríkjunum og yfir 700 flug á dag. Icelandair er frá og með deginum í dag eitt fjögurra flugfélaga í Evrópu sem JetBlue er í samstarfi við, en hin eru Air Lingus, Virgin Atlantic og Lufthansa. „Ég fagna mjög þessu samstarfi og því að tengja viðskiptavini JetBlue við leiðakerfi Icelandair í flugi til Íslands og til Norðurlandanna og Evrópu. Þessi tvö félög eiga margt sameiginlegt og ég hlakka til þess að sjá samstarfið vaxa í framtíðinni“, segir Dave Barger, forstjóri JetBlue Airways. Icelandair flýgur frá Keflavíkurflugvelli til borganna Boston, New York, Seattle, Minneapolis, Orlando, Toronto, Halifax í Norður-Ameríku og í vor hefst áætlunarflug til Washington. Þá flýgur Icelandair til yfir 20 Evrópuborga í sumar. „Við höfum nú á stuttum tíma gert nokkra mikilvæga samstarfssamninga við flugfélög beggja vegna Atlantshafsins þ.e. við Finnair, SAS, Alaska Airlines og nú við JetBlue. Þessir samningar eru í samræmi við þá stefnu okkar að tryggja sjálfstæði Icelandair og sérstöðu í alþjóðafluginu, en um leið að opna fyrir samskiptaleiðir og samstarf við önnur flugfélög“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.
Mest lesið Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Blöskraði dekkjaverð á Íslandi og sparaði sér á þriðja hundrað þúsund Viðskipti innlent Verja tuttugu milljónum króna á dag í loðnuleit í von um tugmilljarða vertíð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Sjá meira