Ólíklegt að gengisforsendur kjarasamninga standi 6. maí 2011 12:46
Greining Íslandsbanka segir að áhugavert verði að fylgjast með áhrifum af þeim fyrirvörum sem settir voru gagnvart stjórnvöldum í nýgerðum kjarasamningum. Ólíklegt sé að gengisforsendurnar um 10% styrkingu krónunnar gangi eftir. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að samhengi sé á milli þriggja af fyrirvörunum. Þannig mun 10% styrking krónunnar fram til ársloka 2012, eins og gert er ráð fyrir í fyrirvörunum, að öllum líkindum bæði tryggja kaupmáttaraukningu og stuðla að verðbólgu innan við 2,5% á tímabilinu. Þetta setur hinsvegar verulega pressu á Seðlabankann að styðja beint eða óbeint við gengi krónu. Bankinn verður þannig að fara sér hægar við aukningu gjaldeyrisforðans en annars væri ef krónan á að styrkjast að ráði. „Einnig gætu Seðlabankamenn túlkað stöðuna þannig að vextir þyrftu að vera hærri en ella næstu misserin til þess að afstýra uppsögn samninganna og frekari óróa á vinnumarkaði. Þó verður að halda til haga að Seðlabankinn kemur ekki að þessu samkomulagi,“ segir í Morgunkorninu. „Raunar hefur bankinn ítrekað lýst vilja til þess að auka gjaldeyriskaup sín og nýjasta gengisspá hans í Peningamálum í apríl gerir ekki ráð fyrir styrkingu krónu í líkingu við það sem lagt er til grundvallar í samningunum nú. Má í því ljósi velta fyrir sér hversu líklegt það sé að gengisforsendan í samningunum gangi eftir.“ Þá segir að einnig megi segja að þeir innan ríkisstjórnarinnar sem hafa viljað auka erlenda fjárfestingu og uppbyggingu orkufreks iðnaðar fái hér nokkra viðspyrnu gagnvart þeim stjórnarliðum sem neikvæðari hafa verið gagnvart slíkri uppbyggingu. Geta þeir fyrrnefndu vísað til yfirlýsingarinnar þegar ýta þarf áfram málum sem tengjast orkufrekum iðnaði. „Áhrifin af slíku eru í raun tvöföld því stóriðjufjárfesting stuðlar bæði að því að uppfylla skilyrðið um fjárfestingaruppbyggingu og innflæði gjaldeyris henni tengt er einnig lykilforsenda þess að hægt sé að styrkja krónuna næstu misserin,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira