Ekki öruggt að Ólafur Örn spili áfram með Grindavík Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. október 2011 13:16 Ólafur Örn Bjarnason Mynd/Óskar Pétur Friðriksson
Þrátt fyrir fullyrðingu þess efnis að Ólafur Örn Bjarnason muni spila áfram með Grindavík á næsta tímabili segir Ólafur sjálfur að það sé ekki víst. Þorsteinn Gunnarson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, staðfesti við fréttadeild í morgun að Ólafur muni stíga til hliðar sem þjálfari en spila áfram með liðinu. Ólafur mun vissulega hætta sem þjálfari en hvort hann muni spila með liðinu á enn eftir að koma í ljós. „Það er ekki búið að skrifa undir eitt eða neitt á þessari stundu," sagði Ólafur Örn í samtali við Vísi í dag. „Í augnablikinu er ég að leita mér að liði eins og allir samningslausir leikmenn." „Grindavík er eina liðið sem ég hef talað við og á borðinu liggja samningsdrög en það er ekki búið að skrifa undir neitt. Leikmenn þurfa að hugsa um sína framtíð og ég vil helst fá að vita hver muni þjálfa liðið áður en ég ákveð mig. Ég mun ekki skrifa blint undir hvað sem er." Hann segir að það geti líka verið óþægilegt fyrir sig og nýjan þjálfara að halda áfram að spila með liði sem hann hefur þjálfað síðan í júní í fyrra. „Það getur verið mjög óþægilegt, bæði fyrir mig og nýjan þjálfara, að fara aftur inn í klefann sem leikmaður," sagði Ólafur sem tilkynnti stjórn félagsins fyrr í sumar að hann gæti ekki áfram sinnt báðum störfum. „Ég lét vita af þessu fyrir einum og hálfum mánuði síðan. Ég var orðinn þreyttur á bæði líkama og sál og mér fannst ég ekki ná því besta úr mér, hvorki sem leikmaður eða þjálfari."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira