Haukur Ingi: Hundfúlir að fá ekki þrjú stig Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 11. september 2011 20:26 Haukur Ingi Guðnason. Mynd/Daníel
Haukur Ingi Guðnason kom inn á í lið Grindavíkur ekki löngu áður en liðið jafnaði metin og fannst bæði þegar hann var utan vallar sem innan að Grindavík hafði verið sterkari aðilinn í leiknum. „Mér fannst við vera sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og súrt að ná ekki að leiða leikinn í hálfleik en þeir fá víti. Menn vildu meina að þetta væri ódýrt en ég sá það ekki af bekknum. Þeir fá mark og leiða í hálfleik og setjast í seinni hálfleik. Þeir ætluðu greinilega að halda fengnum hlut,“ sagði Haukur Ingi eftir leikinn. „Þeir voru fljótir að detta með alla sína menn aftur fyrir miðju þegar þeir töpuðu boltanum. Það er erfitt að brjóta svoleiðis varnarleik niður en það var frábært að ná marki í lokin. Heilt yfir fannst mér við betri og menn eru hundfúlir inni í klefa með að fá ekki þrjú stig, út frá spilamennskunni.“ Sóknarlega lék Grindavík sinn besta leik í langan tíma og það tók Haukur undir. „Við höfum verið helst til varkárir fram á við og við skoruðum ekki í síðustu tveimur leikjum en við skoruðum tvö mörk og það er hægt að taka það með sér inn í næsta leik sem er hörkuleikur á móti særðum KR-ingum.“ Grindavík hefur leikið sex leiki án taps en fimm þeirra eru jafntefli. „Það er mjög mikilvægt að sanka að sér stigum og þó maður hefði viljað þrjú stig gegn liðunum sem við erum að berjast við á botni deildarinnar eins og Þór og Víkingi þá verður maður líka að hugsa hinum megin frá, á meðan eru þeir ekki að fá þrjú stig. Á meðan við söxum stig af þessum liðum er þetta jákvætt en hins vegar þá vill maður alltaf horfa upp fyrir sig og vill taka aðeins fleiri stig og koma sér aðeins hærra í töflunni. Þetta er týpískt þegar það er ekki langt niður, þá verða menn taugaóstyrkir og það er oft á kostnað sóknarleiksins.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira