Umfjöllun: Titilvonir FH lifa góðu lífi Guðmundur Marinó Ingvarsson á Grindavíkurvelli skrifar 19. september 2011 16:00 Mynd/Daníel
FH vann mikilvægan og nokkuð auðveldan 3-1 sigur á Grindavík í kvöld. FH var 1-0 yfir í hálfleik en kláraði leikinn með tveimur mörkum á fyrstu fimm mínútum seinni hálfleik. Það var ekki mikið um færi í fyrri hálfleik. Liðin fengu sín hvor tvö færin en FH var mikið meira með boltann og í raun með leikinn í hendi sér þar sem Grindavík náði ekkert að ógna marki FH fyrr en undir lokin og þá úr föstum leikatriðum. Seinni hálfleikur hófst með látum. FH fékk tvö færi og Grindavík eitt áður en FH skoraði tvö mörk á tveimur mínútum og gerði út um leikinn. Eftir það færðu FH-ingar sig aftar á völlinn og Grindvíkingar fóru að sjá meira af boltanum án þess að skapa sér mikið. Grindavík náði að minnka muninn þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum og fengu tvö færi til viðbótar en það vantaði trúna upp við markið og sigri FH var ekki ógnað. FH er nú tveimur stigum á eftir ÍBV og KR og heldur enn í vonina um að landa titlinum þó augu þeirra séu fyrst og fremst á að halda Evrópusætinu og þar með Val og Stjörnunni fyrir aftan sig. FH á ÍBV á heimavelli í næstu umferð og gæti því verið komið á toppinn fyrir lokaumferðina falli úrslit úr leikjum KR með þeim. Grindavík er enn í tíunda sæti og ljóst að liðið leikur algjöran úrslitaleik á heimavelli í næstu umferð gegn Fram. Sigur þar og Grindavík verður í deild þeirra bestu á næsta tímabili.Grindavík-FH 1-3 0-1 Atli Guðnason (22.) 0-2 Pétur Viðarsson (49.9 0-3 Freyr Bjarnason (50.) 1-3 Magnús Björgvinsson (85.) Grindavíkurvöllur. Áhorfendur: 603 Dómari: Þóroddur Hjaltalín (6)Tölfræði: Skot (á mark): 8-8 (6-5) Varið: Óskar 2 – Gunnleifur 5 Hornspyrnur: 3-8 Aukaspyrnur fengnar: 9-7 Rangstöður: 3-3
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Fótbolti Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Tók fjóra daga þegar hún var tíu ára en getur nú unnið fimmta árið í röð Sport Fleiri fréttir Lárus Orri byrjaður að bæta við sig „Við erum að gera eitthvað rétt“ Á góðum stað fyrir mikil átök Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Shaina boðin hjartanlega velkomin aftur í Hamingjuna Sólarbann, freistingar og kokhraustir Albanir Óli Jóh skellihló að viðtali Heimis Stúkumenn ekki sammála um hvort Valsmenn geti orðið meistarar KA fékk færri athugasemdir en Crystal Palace Sjáðu Árna bjarga sjálfum sér en fá svo á sig jöfnunarmark langt utan af velli Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-1 | Jafntefli vonbrigði fyrir alla Sjáðu Hallgrím Mar klára KR-ingana á fjórum mínútum „Ekki komnir á þann stað að geta tekið leiki og klárað þá“ Uppgjörið: KR - KA 1-2 | KA úr fallsæti „Búnir að vera á smá hrakhólum“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum Hundur vildi prófa nýja gervigrasið og fór inn á völlinn í Eyjum Uppgjörið: ÍA - Fram 0-1 | Vuk heldur áfram að skora Uppgjörið: Vestri - Valur 0-2 | Valur heldur pressu á Víkingum ÍR á toppinn en fjögur rauð spjöld og allt vitlaust í lokin Allison með fyrsta markið á nýjum Hásteinsvelli Mæta Víkingum á nýlögðu gervigrasi í Eyjum Ásgeir og Hrannar heiðruðu Jota Sjáðu glæsimark Óla Vals og öll hin í Mosfellsbæ Halldór: „Þetta er kannski lægsta orku-level sem ég hef séð hjá liðinu í sumar“ Njarðvíkingar flugu á toppinn með stórsigri í Grindavík Uppgjörið: Afturelding-Breiðablik 2-2 | Meisturum Blika fataðist flugið Þróttarar breyttu tapi í sigur með tveimur mörkum í lokin Fær tveggja leikja bann fyrir hártogið Varð fullorðinn úti Sjá meira