Mótastjóri KSÍ: Langur og erfiður dagur í gær Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 19. september 2011 10:45 Úr leik Vals og Þórs sem fram fór á Vodafonevellinum í gær. Mynd/ Anton
Fimm leikjum var frestað í Pepsideild karla í gær vegna veðurs og vallaraðstæðna og eru skiptar skoðanir um þá ákvörðun. Leikur Vals og Þórs var eini leikurinn sem fór fram í gær og voru aðstæður erfiðar, rigning og hávaðarok. „Þetta var langur og erfiður dagur í gær," sagði Birkir Sveinsson mótastjóri Knattspyrnusambands Íslands í samtali við Vísir í morgun. Leikur ÍBV og KR er án efa stórleikur umferðarinnar en þeim leik var frestað í gær þar sem að KR liðið og dómarar leiksins komust ekki til Vestmannaeyja að sögn Birkis: „Eftirlitsmaður KSÍ var mættur til Vestmannaeyja í gær og hann taldi að það væri leikhæft í Eyjum en samgöngumálin voru ekki í lagi. Það var ekki hægt að koma liðunum né dómurunum til Eyja. Þeim leik var því frestað. Skömmu fyrir hádegi höfðu Grindvíkingar samband og við sendum eftirlitsmann á svæðið til að taka út aðstæður. Hann taldi að ekki væri hægt að leika fótbolta í Grindavík og þeim leik var því frestað. Önnur lið höfðu ekki samband fyrr en um tvö í gær. Þá hringdu forráðamenn Fram og tjáðu mér að auglýsingaskilti og fánaborgir væru að fjúka í Laugardalnum. Í kjölfarið fer boltinn af stað hjá okkur og ég keyrði síðan sjálfur úr Hveragerði þar sem ég bý til þess að taka út leikstaðina. Ég boðaði dómarana fyrr á svæðið og til þess að geta tekið ákvörðun fyrr á staðnum og auk þess til þess að kanna vilja félagana til þess," sagði Birkir en hann bætti því við að erfið staða hafi komið upp varðandi leik Vals og Þórs. „Það sem er sérstakt í þessu máli er að Þórsararnir eru komnir til Reykjavíkur og eftir að hafa kannað viljann hjá þjálfurunum hvort þeir vilji spila þá er bara farið af stað og leikurinn fór fram. Okkur bar skylda til þess að setja leikinn í gang þar sem Þórsararnir voru komnir á svæðið. Auðvitað eru skiptar skoðanir um þá ákvörðun," sagði Birkir í samtali við Vísir í dag. Fimm leikir eru á dagskrá í dag þegar 20. umferð lýkur: Leikur ÍBV og KR hefst kl. 17.00 og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 sport. Þrír aðrir leikir hefjast á sama tíma, Breiðablik – Víkingur, Grindavík – FH og Fylkir Stjarnan. Leikur Fram og Keflavíkur hefst kl. 19.15 á Laugardalsvelli.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira