Skúli Jón meiddur - missir af næstu leikjum KR Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. ágúst 2011 11:07 Skúli Jón fagnar í leik með KR í sumar. Mynd/Anton
Skúli Jón Friðgeirsson mun missa af næstu tveimur leikjum KR að minnsta kosti en hann meiddist er KR gerði 1-1 jafntefli við Stjörnuna í gær. Skúli Jón tognaði aftan í vinstra læri í gær og missir því af toppslag KR gegn ÍBV á fimmtudaginn. Einnig telur hann fullvíst af hann missi af leiknum gegn Fram á mánudaginn. „Það er erfitt að segja til um hversu alvarlegt þetta er. Ég hitti sjúkraþjálfara í dag en ég veit ekki hvort hann hefur einhver svör fyrir mig undir eins," sagði Skúli Jón við Vísi í dag. „Það getur verið að ég verði orðinn góður eftir landsleikjafríið en það getur líka vel verið að ég verði lengur frá. Ég vona auðvitað að ég þurfi ekki nema 2-3 vikur til að jafna mig því það væri skelfilegt að missa af restinni af tímabilinu." Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Skúli Jón fær að glíma við meiðsli af þessum toga. „Ég hef áður lent í vandræðum með þessi meiðsli og þá báðum megin. Þetta er minn eini veikleiki," sagði hann í léttum dúr. „Yfirleitt hef ég verið 2-3 vikur að jafna mig en í vetur þurfti ég að hvíla í 6-7 vikur sem var afar svekkjandi. Ég vona að þetta verði ekki svo alvarlegt nú." Óskar Örn Hauksson hefur verið frá vegna meiðsla og spilar hann ekki meira með á tímabilinu. Magnús Már Lúðvíksson og Gunnar Örn Jónsson misstu báðir af leiknum í gær vegna meiðsla. Þá hefur Bjarni Guðjónsson verið tæpur en hann spilaði þó í gær. Þeir Viktor Bjarki Arnarsson og Björn Jónsson fóru báðir af velli í gær eftir að hafa beðið um skiptingu vegna meiðsla. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, sagði þó við Vísi að hann vonaðist til að þeir yrðu klárir fyrir leikinn gegn ÍBV á fimmtudaginn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira