Formaður Þórs ósáttur við framkomu leikmanna aðkomuliða Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. ágúst 2011 19:14
Formaður Þórs, Sigfús Ólafur Helgason, hefur fengið sig fullsaddan af framkomu leikmanna aðkomuliða á Þórsvelli í sumar. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2. „Við getum byrjað á að tala um viðskilnað liða við klefann þegar þau hafa yfirgefið leikvang. Það er stundum þannig að maður á bara ekki orð. Maður skilur ekki að þarna hafi verið fólk á ferð," sagði Sigfús. Sigfús er ósáttur við framkomu leikmanna gagnvart mannvirkjum og starfsfólki. „Það hafa verið unnar skemmdir á stúkunni, þetta er nú nýtt mannvirki. Síðan er náttúrulega framkoma leikmanna bæði við mannvirki og starfsmenn stundum með hreinum ólíkindum. Við verðum að uppræta þennan ósóma." Sigfús segir framkomu Kjartans Henry Finnbogasonar, leikmanns KR, hafa fyllt mælinn. Kjartan var rekinn af velli með rautt spjald í 2-1 sigri KR-inga norðan heiða í síðustu umferð Pepsi-deildar karla. „Já, í sjálfu sér var það það sem fékk mig til þess að segja hingað og ekki lengra. Það var í sjálfu sér ekki stórt atvik en engu að síður var þar veitt að húsmunum í húsinu og hurðum skellt með þeim látum að ég hélt að hún færi bara úr. Með ókvæðisorðum gegn starfsmönnum leiksins eftir að leikmaðurinn var rekinn útaf. Mér finnst þetta orðið þannig að ég get ekki orða bundist. Við verðum að finna einhverja leið út úr þessu. Þetta er ekki íþróttinni til framdráttar, alls ekki." Fréttin var fyrsta íþróttafréttin í kvöldfréttum Stöðvar 2 og hægt er að horfa á hana í spilaranum hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Sjá meira