Umfjöllun: Frábærir Stjörnumenn fóru illa með Þórsara Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Stjörnuvelli skrifar 7. ágúst 2011 13:43 Halldór Orri og Nikolaj Pedersen í leiknum í dag. Mynd/Valli
Stjarnan vann afar sterkan sigur á nýliðum Þórs á heimavelli sínum í Garðabæ, 5-1, þrátt fyrir að hafa verið manni færri bróðurpart leiksins. Stjörnumenn komust tvívegis yfir í fyrri hálfleik með mörkum Garðars Jóhannssonar og Jesper Jensen. David Disztl skoraði mark Þórs en staðan í hálfleik var 2-1. Baldvin Sturluson fékk að líta beint rautt spjald í lok fyrri hálfleiks en Garðbæingar voru engu að síður með mikla yfirburði í seinni hálfleik og gerðu út um leikinn með tveimur mörkum á fyrstu ellefu mínútunum. Þau skoruðu Halldór Orri Björnsson og Garðar, sem fullkomnaði svo þrennuna undir lok leiksins með marki beint úr aukaspyrnu. Það varpar hins vegar skugga á sigur Stjörnunnar að hinn öflugi Jesper Jensen fór meiddur af velli og virtist sárþjáður. Ekki er ólíklegt að um hnémeiðsli hafi verið að ræða. Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs, gaf það út fyrir leikinn að hann ætlaði að hvíla þá leikmenn sem væru á gulu spjaldi fyrir bikarúrslitin um næstu helgi og gerði hann alls fimm breytingar á sínu liði. Stjörnumenn stilltu hins vegar upp nokkuð hefðbundnu liði. Fyrri hálfleikur var afar fjörlegur og fjörið hófst strax á þriðju mínútu. Stjörnumenn fengu horn sem þeir útfærðu mjög vel. Boltanum var rennt út á Nikolaj Pedersen sem gaf háan bolta á fjarstöng þar sem að Garðar var mættur og skoraði með fínum skalla. Þórsarar voru ekki nema níu mínútur að jafna metin eftir snarpa sókn. Gunnar Már, sem átti stórleik í fyrri hálfleik, var með boltann á hægri kantinum og gaf fyrir á David Distzl sem skoraði af stuttu færi. Norðanmenn misstu svo varnarmanninn Atla Jens Albertsson út af vegna meiðsla en sýndu þó inn á milli lipra takta. Þeir sóttu hratt upp völlinn og virtust hættulegir. En að sama skapi lá nokkuð mikið á þeim þegar Stjörnumenn voru með boltann. Sóknarþungi heimamanna bar árangur þegar að Halldór Orri Björnsson renndi boltanum út á Jesper Jensen. Sá danski lét vaða og skoraði með glæsilegu skoti. Umdeilt atvik átti sér svo stað undir lok fyrri hálfleiksins. Baldvin Sturluson fór full harkalega inn í Gunnar Má sem lá óvígur eftir. Guðmundur Ársæll Guðmundsson, dómari leiksins, hikaði ekki og sýndi Baldvini rauða spjaldið. Stjörnumenn voru afar ósáttir og vildu meina að enginn ásetningur hafi verið með brotinu. En þrátt fyrir að láta mótlætið fara í skapið á sér gerðu Stjörnumenn hið gagnstæða og kláruðu leikinn á næstu fyrstu tíu mínútum hálfleiksins eða svo. Heimamenn skoruðu þá tvö mörk og hreinlega káluðu leiknum. Fyrst Halldór Orri með þrumufleyg eftir glæsilegan undirbúnings Jespers Jensen, og svo Garðar með skalla á fjarstöng eftir góða fyrirgjöf Daníels Laxdals. Á 58. mínútu urðu Stjörnumenn þó fyrir öðru áfalli. Jesper Jensen, sem hafði verið frábær í leiknum og mikilvægur hlekkur á miðju Stjörnunnar í allt sumar, sneri sig illa á hné og var borinn af velli, sárþjáður. Leikurinn var nokkuð tíðindalítill síðasta hálftímann enda úrslitin löngu ráðin. Garðar skoraði fimmta mark Stjörnunnar og sitt þriðja beint úr aukaspyrnu undir lok leiksins og kórónaði þar með frábæran leik. Stjörnumenn sýndu mikla hörku í dag og ber að hrósa mikið fyrir að láta mótlætið þjappa sér saman frekar en hitt. Þórsarar mega kannski ekki við því að hvíla marga lykilmenn í sama leiknum en þeir sýndi þó margt ágætt í fyrri hálfleik. Þeim hins vegar mistókst algerlega að nýta sér yfirtöluna í seinni hálfleik og leyfðu heimamönnum að fara illa með sig, hvað eftir annað.Stjarnan – Þór 5-1Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson (6)Skot (á mark): 18–7 (10-2)Varin skot: Ingvar 2 – Björn Hákon 5Hornspyrnur: 6–3Aukaspyrnur fengnar: 17–18Rangstöður: 1–8
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Fleiri fréttir Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Sjá meira