Umfjöllun: Steindautt hjá Fram og Fylki í Laugardalnum Kolbeinn Tumi Daðason á Laugardalsvelli skrifar 7. ágúst 2011 14:02 Mynd/Valli
Fram og Fylkir gerðu markalaust jafntefli í tilþrifalitlum leik í Laugardalnum í kvöld. Leikurinn fór fram við bestu aðstæður en það var hins vegar ekki að sjá hjá leikmönnum beggja liða. Fram og Fylkir gerðu markalaust jafntefli í tilþrifalitlum leik í Laugardalnum í kvöld. Leikurinn fór fram við bestu aðstæður en það var hins vegar ekki að sjá hjá leikmönnum beggja liða. Fylkismenn voru sterkari aðilinn í leiknum en nýttu ekki færin. Fram átti ekki skot sem hitti markið í öllum leiknum. Leikurinn var nokkuð jafn framan af en gæði leiksins ansi lág. Sendingar á samherja rötuðu oftar en ekki beint á andstæðinginn líkt og sá væri tilgangurinn með sendingunni. Fyrsta snerting hjá leikmönnum var skelfileg og bæði lið gáfu ódýra hornspyrnu í fyrri hálfleik þar sem móttaka leikmanna var svo slæm að boltinn hrökk aftur fyrir endamörk. Ekkert var skorað úr þeim hornspyrnum frekar en öðrum færum í leiknum. Tilþrif fyrri hálfleiksins voru í boði Englendingsins Sam Tillen. Hann skeiðaði með boltann upp völlinn, sá að Fjalar var kominn af línu sínu og reyndi að vippa yfir hann fyrir utan teig. Skotið lenti ofan á slánni sem betur fer fyrir Fylkismenn. Í síðari hálfleik voru Fylkismenn töluvert sterkari. Tómas Joð Þorsteinsson var duglegur að láta vaða á markið langt utan af velli en náði ekki að hitta markið frekar en Framarar í öllum leiknum. Eina færi Framara í síðari hálfleiknum fékk Steven Lennon þegar hann komst einn gegn Fjalari en skot Englendingsins fór í hliðarnetið. Jóhann Þórhallsson fékk bestu færi Fylkismanna. Fyrst varði Ögmundur frá honum af stuttu færi og skömmu fyrir leikslok kom færi leiksins. Jóhann komst þá einn gegn Ögmundi vinstra megin, lék boltanum framhjá honum og með boltann fyrir frammi opnu marki. Hægri fótur Jóhanns brást honum hins vegar og skotið framhjá markinu. Vart þarf að taka fram að Jóhann er örvfættur. Markalaust jafntefli vonbrigði fyrir bæði lið en Fylkismenn mega vera svekktari með úrslitin. Þeir fengu betri færi og virtust vilja sigurinn meira. Greinilegt að reiði Ólafs Þórðarsonar gagnvart leikmönnum sínum eftir tapið gegn ÍBV í Árbænum á miðvikudaginn skilaði sér í betri frammistöðu. Útlitið hjá Frömurum er hins vegar afar svart. Liðið er með sjö stig eftir 14 leiki og hefur auk þess aðeins skorað sjö mörk. Hálft mark að meðaltali í leik heldur liðinu ekki í deildinni.Fram - Fylkir 0-0Dómari: Þóroddur Hjaltalín (4.)Skot (á mark): 5-10 (0-3)Varin skot: Ögmundur 3 – Fjalar 0Horn: 3-8Aukaspyrnur fengnar: 15-15Rangstöður: 3-3
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira