Þjálfari Rosenborgar segir liðið ekki vanmeta Breiðablik Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. júlí 2011 13:30 Roar Strand og leikmenn Rosenborgar á góðri stundu. Nordic Photos/AFP
Noregsmeistarar Rosenborgar taka á móti Breiðablik á Lerkendahl-vellinum í Þrándheimi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Jan Jönsson, þjálfari liðsins, segir að norska liðið muni ekki vanmeta íslenska liðið. Rosenborg varð Noregsmeistari á síðustu leiktíð og tapaði ekki leik í deildinni. Liðið hefur þó átt erfitt uppdráttar á yfirstandandi leiktíð og situr í 6. sæti eftir fjórtán leiki.Rosenborg hefur hins vegar mikla reynslu úr Evrópukeppnum og hefur komist í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu ellefu sinnum. „Við munum ekki vanmeta þá. Meistaradeildin gefur krydd í keppnistímabilið hjá okkur og var mikil hvatning fyrir strákana þegar við áttum erfitt uppdráttar í upphafi deildarkeppninnar,“ sagði Jönsson þjálfari Rosenborgar í viðtali á heimasíðu evrópska knattspyrnusambandsins. Rosenborg var um tíma í næsta neðsta sæti deildarinnar en liðið tapaði fjórum af fyrstu sjö leikjum sínum. Liðið hefur þó rétt úr kútnum að undanförnu og er á uppleið. „Við höfum náð góðum úrslitum undanfarnar vikur sem hafa hjálpað okkur að byggja upp sjálfstraust,“ sagði Jönsson. Leikur Rosenborgar og Breiðabliks fer fram á Lerkendahl-vellinum í Þrándheimi í kvöld og hefst klukkan 18:45. Síðari leikur liðanna fer fram á Kópavogsvelli að viku liðinni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Sjá meira