Pace var skel Landsbankans til að lána meira í fasteignaævintýri Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. júlí 2011 18:30
Huldufélagið Pace Associates í Panama var skúffufélag sem Landsbankinn í Lúxemborg útbjó en félagið var síðan látið fjármagna fasteignasjóð á Indlandi. Baugur, Hannes Smárason og Kevin Stanford voru meðal hluthafa í sjóðnum. Hinn 24. apríl 2007 lánaði Fons félaginu Pace Associates þrjá milljarða króna og voru peningarnir millifærðir inn á reikning Pace hjá Landsbankanum í Lúxemborg, samkvæmt millifærslukvittun í bókhaldi Fons. Lánið átti að greiða til baka í apríl 2010 en engin greiðsla barst. Óskar Sigurðsson, skiptastjóri Fons, hefur nú í á annað ár verið að reyna að komast að því hvað varð um peningana, en Pálmi Haraldsson, sem var aðaleigandi Fons, gaf þær skýringar í skýrslutöku hjá skiptastjóranum að Pace hafi fjárfest í fasteignaverkefnum á Indlandi og millifærslan inn á reikning Pace hafi verið lánveiting til þessa sama verkefnis. Pálmi Haraldsson sagði við fréttastofu að Hannes Smárason og Landsbankinn í Lúxemborg hefðu kynnt verkefnið fyrir sér á sínum tíma. Pálmi gat ekki svarað því um hvaða fasteignaverkefni hefði verið að ræða og hvar á Indlandi félagið hefði fjárfest. Eins og komið hefur fram er millifærslan frá Fons til Pace nú til rannsóknar, en Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, staðfesti við fréttastofu að þriggja milljarða króna lánveiting frá Fons til Pace Associates væri til rannsóknar hjá embættinu en vildi ekki tjá sig að öðru leyti um málið. Stöð 2 hefur hins vegar heimildir fyrir því að meðal gagna sem embættið hafi undir undir höndum séu skjöl sem tengi Hannes Smárason við félagið Pace Associates. Hannes Smárason var þó ekki einn á bak við verkefni sem Pace fjármagnaði. Um er að ræða sjóðinn Terra Firma, sem samkvæmt upplýsingum fréttastofu var í eigu Baugs Group, Hannesar, Kevin Stanford og fleiri fjárfesta. Þá átti Landsbankinn í Lúxemborg sjálfur 20 prósenta hlut. Terra Firma fjárfesti í fasteignaverkefnum á sviði atvinnuhúsnæðis á Indlandi. Stöð 2 hefur undir höndum gögn sem sýna fjárfestingar Terra Firma í borgunum Chennai, Kerala og Pune á Indlandi. Ein af fasteignunum var risavaxið atvinnuhúsnæði (260 þúsund fermetrar) fyrir bandaríska tölvurisann IBM í Pune. Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að Pace fléttan hafi verið útbúin af Landsbankanum í Lúxemborg til að klára fjármögnun fyrir Terra Firma. Bankinn stofnaði Pace Associates sem gaf út skuldabréf sem Fons og fleiri fjárfestar keyptu. Pace Associates fjármagnaði síðan Terra Firma verkefnið og tryggði fjármögnun þess. Þeir sem keyptu skuldabréfin af Pace, eins og Fons, fjárfestu því með óbeinum hætti í Terra Firma verkefninu. Pálmi Haraldsson sagði við fréttastofu í dag að þetta væri meira en hann vissi um verkefnið á Indlandi. „Takk fyrir að láta mig vita, þetta er meira en ég veit," sagði hann. Pálmi sagði að þriggja milljarða króna millifærslan inn á reikning Pace hjá Landsbankanum hefði verið greiðsla fyrir kaupin á skuldabréfinu, en hvorki Fons né hann sjálfur hefðu verið hluthafar í Pace á neinum tímapunkti. Heimildarmenn fréttastofunnar segja óskiljanlegt að Landsbankinn í Lúxemborg hafi neitað skiptastjóra Fons sem og öðrum um upplýsingar um Pace Associates, enda liggi eignarhald og fyrirkomulag félagsins skýrt fyrir, en Landsbankinn hefur hingað til borið fyrir sig bankaleynd. Fram kom í fréttum í síðustu viku að annað félag á vegum fyrirsvarsmanna Pace, þeirra Francis Perez og Leticia Montoya hafi ásamt fleirum verið notað til að þvætta peninga fyrir fyrrverandi forseta Níkaragva, Arnoldo Alemán. Svo virðist sem Pace Associates hafi verið eitt af mörg hundruð félögum sem þau hafi verið í fyrirsvari fyrir, en vel þekkt er víða um veröld að fólk hafi það starf eitt að hýsa félög fyrir aðra. Það þekkist á Tortóla á Jómfrúreyjum og einnig í Panama. Það var Landsbankinn í Lúxemborg sem átti frumkvæðið að því að finna hina umdeildu fyrirsvarsmenn sem virðast hafa það að aðalstarfi að hýsa félög fyrir aðra. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira