Endurskipulagningu Eikar lokið 7. júlí 2011 09:42 Eik á m.a. eignir víða í miðborginni.
Hluthafar og kröfuhafar Eikar fasteignafélags hf. hafa samþykkt endurskipulagningu félagsins í frjálsum samningum og óveðtryggðum kröfum á hendur fyrirtækinu hefur verið breytt í eigið fé. Þá hafa veðtryggðir kröfuhafar skuldbreytt og lengt í lánum Eikar sem tryggir gjaldfærni félagsins og að reksturinn verði traustur um ókomna tíð. Í tilkynningu segir að endurheimtur óveðtryggðra kröfuhafa eru hærri en kröfurnar sé horft til bókfærðs virðis eigna. Hluthafar eftir endurskipulagningu eru lífeyrissjóðir, fjármálafyrirtæki og eignarhaldsfélög. Skuldir Eikar lækka um 3.4 milljarða kr. og eigið fé hækkar um 3.2 milljarða kr. Sé miðað við bókfært virði eigna í lok árs 2010 munu óveðtryggðir kröfuhafar fá meira greitt en sem nemur kröfum þeirra á hendur félaginu eða sem nemur 160 prósent af uppreiknuðum kröfum. Alls eru hluthafar félagsins 20 eftir endurskipulagninguna og í þeim hópi eru meðal annars 10 lífeyrissjóðir sem fara með tæp 40 prósent hlut í félaginu, fjármálafyrirtæki og eignarhaldsfélög. Hlutafé félagsins hefur verið hækkað um 90 milljónir kr. og er nú 800 milljónir kr. að nafnvirði. „Eftir endurskipulagninguna mun Eik sigla á lygnum sjó," segir Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri fyrirtækisins í tilkynningunni. „Eigið fé auk tekjuskattsskuldbindinga hefur hækkað um 3.2 milljarða er nú 4.6 milljarðar. Þá hafa skuldir félagsins hafa lækkað um 3.4 milljarða. Endurskipulagningin er mikið ánægjuefni enda er um að ræða eina af fáum endurskipulagninguna á íslenskum fjármálamarkaði sem lokið er með frjálsum samningum og að teknu tilliti til hve aðkoma margra var nauðsynleg. Framtíð Eikar er björt." Kjarnastarfsemi Eikar er eftir sem áður útleiga atvinnuhúsnæðis og á félagið yfir hundrað þúsund fermetra af húsnæði. Meira en þrír fjórðu hlutar þess eru á miðsvæði verslunar og viðskipta á höfuðborgarsvæðinu. Á síðasta ári gerði félagið 106 nýja leigusamninga og útleiguhlutfall félagsins hækkaði og var 92 prósent í árslok. Auk stórra leigutaka hefur mikil gróska verið í útleigu lítils húsnæðis til frumkvöðla á sviði verslunar og þjónustu, sem veit á gott fyrir rekstrarárið 2011. „Okkar tölur benda til þess að rekstrarskilyrði í íslensku efnahagslífi hafi náð vissum stöðugleika, sem skilar sér í minni veltu á leigutökum samhliða aukningu í útleigðum fermetrum," segir Garðar. „Þetta mun skila sér í bættri rekstrarafkomu félagsins, sem veit á gott fyrir bæði efnahagslífið almennt og ekki síður okkar hluthafa," segir Garðar.
Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira