Ferðamenn aldrei verið fleiri í júnímánuði 7. júlí 2011 11:54
Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 65.606 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í júní síðastliðnum eða 11.215 fleiri en í sama mánuði í fyrra. Aukningin nemur 20,6% milli ára og hafa ferðamenn aldrei verið fleiri í júnímánuði. Í tilkynningu frá Ferðamálastofu segir að ef litið er til einstakra markaðssvæða má sjá 50,4% aukningu frá N-Ameríku, 17% aukningu frá Norðurlöndunum, 15,7% frá Mið- og Suður Evrópu, 7,6% frá Bretlandi og 12% frá löndum innan og utan Evrópu sem eru flokkuð saman undir ,,Annað”. Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í júní frá Bandaríkjunum (17,7%) og Þýskalandi (14,6%) en þar á eftir fylgdu ferðamenn frá Noregi (8,1%), Danmörku (6,9%), Bretlandi (6,6%), Svíþjóð (6,1%) og Frakklandi (6,0%). Samanlagt voru þessar sjö þjóðir tæplega tveir þriðju ferðamanna í júní. Alls hafa 206.886 erlendir ferðamenn farið frá landinu það sem af er ári eða 35.636 fleiri en á sama tímabili í fyrra. Aukningin milli ára nemur 20,8%. Aukning hefur verið frá öllum mörkuðum, langmest þó frá N-Ameríku eða 47,8%. Þar næst kemur Mið- og Suður Evrópa með 22,2% aukningu og Norðurlöndin með 20,4% aukningu. Aukningin frá Bretlandi er heldur minni eða tæp 8% og um 11% frá öðrum svæðum. Brottförum Íslendinga fjölgaði um fimmtung í júní frá því í fyrra, voru 37.438 í ár en 30.736 í fyrra. Brottförum Íslendinga frá áramótum hefur að sama skapi fjölgað um ríflega fimmtung (22,7%) í samanburði við sama tímabil árið 2010.
Mest lesið Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira