Íslenski boltinn

Jósef vill losna undan samningi við búlgarska liðið

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Jósef Kristinn Jósefsson og Grétar Ólafur Hjartarson í leik með Grindavík í fyrra.
Jósef Kristinn Jósefsson og Grétar Ólafur Hjartarson í leik með Grindavík í fyrra. Mynd/Vilhelm
Jósef Kristinn Jósefsson, fyrrum leikmaður Grindavíkur, hefur æft með sínu gamla liði að undanförnu en hann vill losna undan samningi sínum við búlgarska liðið PSFC Chernomorets Burgas. Bakvörðurinn segir í samtali við fotbolti.net að félagið hafi ekki staðið við samninginn sem gerður var í febrúar s.l. og vonast Jósef eftir því að samningnum verði rift.

Búlgarska liðið keypti Jósef frá Grindavík í febrúar s.l. og skrifaði hann undir þriggja ára samning. Samkvæmt heimildum fotbolti.net hafa Grindvíkingar ekki fengið greitt samkvæmt þeim samningum sem gerðir voru við PSFC Chernomorets Burgas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×