Íslenski boltinn

Kristinn tryggði Blikum sigur - myndir

Mynd/HAG
Kristinn Steindórsson skoraði bæði mörk Breiðabliks og er langmarkahæsti leikmaður Pepsi-deildar karla með átta mörk. Blikar lentu marki undir gegn Keflavík en unnu að lokum 2-1 sigur.

Þetta var aðeins þriðji sigur Blika í sumar og því kærkominn fyrir Íslandsmeistarana. Blikar eru í sjöunda sæti deildarinnar með ellefu stig en Keflvíkingar sitja eftir í því áttunda með átta stig.

Haraldur Guðjónsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á vellinum og tók þessar myndir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×