Jóhann Helgason: Menn stressaðir á boltann Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. júní 2011 22:45
Jóhann Helgason var besti leikmaður Grindavíkur í 2-1 tapi gegn Stjörnunni í kvöld. Þrátt fyrir að hafa verið með vindinn í bakið allan síðari hálfleikinn í leit að marki tókst Grindvíkingum ekki að skapa sér nógu góð færi. „Nei, við náðum ekki að spila boltanum nógu vel og spila okkur í gegn. Við vorum bara að reyna stungusendingar en það var ekki að skapa okkur neitt." Töluverður vindur setti svip sinn á leikinn auk þess sem hann fór fram á hinu umtalaða gervigasi í Garðabænum. „Já auðvitað voru aðstæður erfiðar en það er engin afsökun. Þetta var eflaust ekki skemmtilegur leikur á að horfa og aðstæður höfðu örugglega mikið að segja um það." Grindvíkingum gekk illa að halda boltanum innan liðsins í leiknum. „Menn virðast vera svolítið stressaðir á boltann og vita ekki alveg hvað þeir eiga að gera við hann. Ég skil ekki af hverju það er því við höfum fulla getu til þess að halda boltanum. Við erum þannig lið og með þannig leikmenn. Við verðum að fá meira sjálfstraust til að gera það." Jóhann segir fúlt að fara inn í hléið með tap á bakinu. „Já, að sjálfsögðu. Þetta var í sjálfu sér mjög mikilvægur leikur. Þessi leikur hefði getað híft okkur upp í töflunni. Alltaf leiðinlegt að fara inn í langt frí með tap á bakinu." Það var kalt í veðri í Garðabænum í kvöld og átti fréttamaður afar erfitt með að halda upptökuvélinni stöðugri sökum kuldahrolls. Af þeim sökum er sérstaklega sjóveiku fólki ráðlagt að láta sér nægja að hlusta á viðtalið við Jóhann.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun: Fyrsti sigur Stjörnunnar í Garðabæ í sumar Stjörnumenn fögnuðu fyrsta heimasigri sínum í sumar þegar þeir unnu 2-1 sigur á Grindavík í 7. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Stjarnan er þar með komið með 11 stig en Stjörnumenn fóru upp í fjórða sætið með því að krækja í þessi þrjú stig. 6. júní 2011 13:20 Mest lesið Rikki G kafnaði aftur í beinni útsendingu Fótbolti Stækkaði typpi skíðastökkvara Sport Undir pressu vegna tengsla við Epstein: „Ég get ekki rekið hann“ Sport Fær um þrjátíu milljónir í sárabætur frá ríkasta manni Úkraínu Sport Hélt að hundurinn sem hljóp inn á brautina væri úlfur Sport Skíðasambandinu fannst Halldór of slæm fyrirmynd Sport Skýtur skökku við: Beindi spjótum sínum að Mourinho Fótbolti „Breiðablik búið að vera mígandi utan í mig í mörg ár“ Íslenski boltinn Stutt gaman hjá stelpunum okkar í brekkunni Sport Segist ekki hafa kallað Vinicius apa og Benfica bakkar hann upp Fótbolti Fleiri fréttir „Breiðablik búið að vera mígandi utan í mig í mörg ár“ Utan vallar: Eins og að missa ljósleiðarann og þurfa að nota aftur gamla módemið FH hafði betur gegn Stjörnunni Breiðablik kaupir Ívar af KA Blikar að landa Ívari KA vann meistarana og Stígur Diljan sá rautt KSÍ dregur úr verðhækkunum KR lenti tveimur undir en er enn án taps Keflavík og HK á sigurbraut Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Dramatík í Suðurnesjaslag Draga sig úr keppni og hvetja félög til að beita sér á ársþingi KSÍ „Þetta er allt annað dæmi“ Íslenska deildin byrjar langsíðust Freyja með þrennu er Víkingur valtaði yfir Fram Hallgrímur bætist við landsliðshópinn Kristján krækti í einn besta leikmann Bestu deildarinnar Guðmundur Magnússon skiptir úr bláu í grænt Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Sjá meira
Umfjöllun: Fyrsti sigur Stjörnunnar í Garðabæ í sumar Stjörnumenn fögnuðu fyrsta heimasigri sínum í sumar þegar þeir unnu 2-1 sigur á Grindavík í 7. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Stjarnan er þar með komið með 11 stig en Stjörnumenn fóru upp í fjórða sætið með því að krækja í þessi þrjú stig. 6. júní 2011 13:20