Ólafur: Flottur leikur Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 6. júní 2011 22:46 Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis. Mynd/Valli
Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis var ákaflega ánægður og stoltur af sínu liðið eftir glæsilegan 3-1 sigur á Víkingum í kvöld á Víkingsvellinum. „Þetta var flottur leikur hjá okkur, meira og minna frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Við byrjum seinni hálfleikinn alveg vel en gerum ein mistök og þeir refsa um leið en svo fáum við ekkert smá mark frá Baldri Bett sem klíndi honum í skeytin. Það var flott og þar braut hann þá,“ sagði Ólafur en Baldur Bett lék í stöðu framliggjandi miðjumanns og þakkaði það með þessu glæsimarki. „Við færðum hann í þessa stöðu í síðasta leik og það gekk vel og ég sá ekki ástæðu til að breyta því. Ég get ekki betur séð en það sé allt í góðu.“ Fylkir hefur náð í 13 stig í sjö fyrstu umferðunum sem hlýtur að vera nálægt markmiðum þeirra en það tók Ólafur undir. „Við erum nálægt okkar markmiðum. Við höfum gefið aðeins of auðveld stig frá okkur en við getum ekki annað en verið sáttir. Við erum innan þeirra marka sem við settum okkur sjálfir og það er ólíkt betra að fara inn í þetta þriggja vikna frí með þennan sigur í farteskinu heldur en tap. Það hefði verið svo leiðinlegt fyrir strákana að sitja með það á bakinu,“ sagði Ólafur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun: Fylkir áfram á góðri siglingu Fylkir gerði góða ferð á Víkingsvöll í kvöld þar sem liðið lagði heimamenn í Víking sannfærandi 3-1. Fylkir var betra liðið nær allan leikinn og þegar Víkingar komu sér inn í hann með jöfnunarmarki svöruðu gestirnir jafnharðan í tvígang og gerðu út um leikinn. 6. júní 2011 19:00 Andri: Mætum af krafti eftir frí Andri Marteinsson þjálfari Víkings var ekki í neinum vafa um það hver vendipunkturinn í tapinu gegn Fylki í kvöld var. Það var glæsimark Baldurs Bett aðeins mínútu eftir að Víkingar höfðu jafnað metin í upphafi seinni hálfleiks. 6. júní 2011 22:44 Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Körfubolti Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Fótbolti Fleiri fréttir Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Elías Már sárþjáður og fór af velli Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Uppgjörið: ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: FH - Stjarnan 2-2 | Jafnt í Krikanum Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2 | Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjörið: Þór - KR 3-3 | Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Sjá meira
Umfjöllun: Fylkir áfram á góðri siglingu Fylkir gerði góða ferð á Víkingsvöll í kvöld þar sem liðið lagði heimamenn í Víking sannfærandi 3-1. Fylkir var betra liðið nær allan leikinn og þegar Víkingar komu sér inn í hann með jöfnunarmarki svöruðu gestirnir jafnharðan í tvígang og gerðu út um leikinn. 6. júní 2011 19:00
Andri: Mætum af krafti eftir frí Andri Marteinsson þjálfari Víkings var ekki í neinum vafa um það hver vendipunkturinn í tapinu gegn Fylki í kvöld var. Það var glæsimark Baldurs Bett aðeins mínútu eftir að Víkingar höfðu jafnað metin í upphafi seinni hálfleiks. 6. júní 2011 22:44