Ólafur: Alls ekki sáttur Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 7. júní 2011 22:35 Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks. Mynd/Valli
Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks sagðist ekki geta annað en tekið stiginu sem fékkst með jafntefli Breiðabliks gegn Fram á heimavelli í kvöld en var alls ekki sáttur við leik sinna manna. „Ég sætti mig við stigið en ég er ekki sáttur við frammistöðu okkar í leiknum. Við vorum daufari í seinni hálfleik og ekki nógu grimmir. Mér fannst við ekki gefa nægilega mikið í þegar við vorum með forystuna í leiknum. Við náum ekki að setja annað mark til að láta þá koðna. Á meðan staðan var 1-0 var von fyrir þá og í seinni hálfleik vorum við í fyrsta gír.“ „Við föllum of langt aftur og látum Fram pressa okkur of langt aftur. Ég tek það ekki af þeim að þeir unni sig inn í leikinn og þvinguðu okkur til að fara aftar og mér fannst við ekki setja nægilega mikla pressu á boltamanninn hjá þeim. Það skiptir ekki máli hvort við erum framarlega eða aftarlega ef þú setur ekki boltapressu á manninn þá ertu í vanda,“ sagði Ólafur sem er ekki sáttari með uppskeruna, átta stig í sjö leikjum en leik síns liðs í kvöld. „Ég er alls ekki sáttur við átta stig í sjö leikjum. Það er ekki nægjanlega en staðreyndin er sú og við getum ekki flúið þá staðreynd. Það eru leikir eftir í mótinu og nú þurfa menn að spýta í lófana og hundskast til þess, bæði ég og leikmenn þurfa að taka fram vinnuhanskana og ráða bót á þessu,“ sagði Ólafur en Dylan Jacob MacAllister lék ekki með Breiðabliki í kvöld þar sem bráðabirgða dvalarleyfi hans á Íslandi er runnið út. „Dylan er í Björgvin í Noregi, veit ekki alveg hvað hann er að gera þar en það þarf víst frumrit af sakavottorðum til að fá landvistarleyfi. Rafræn gögn sem eru notuð víða 2011 voru komin til viðeigandi stofnanna en það var ekki nægjanlegt og það náðist ekki að fá frumritin til landsins í dag og því situr hann í Björgvin. Ég ætla rétt að vona að þetta tefjist ekki enn frekar,“ sagði ósáttur Ólafur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira