Jón Guðni: Var sanngjarnt Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 7. júní 2011 22:36 Jón Guðni Fjóluson. Mynd/Valli „
Við tökum stigið sáttir en þau hefða getað og mátt vera þrjú í dag. Þeir fá kannski færi líka til að klára þetta þannig að ég held að þetta hafi verið sanngjarnt,“ sagði varnarmaðurinn öflugi Jón Guðni Fjóluson eftir að Fram og Breiðblik gerðu 1-1 jafntefli á Kópavogsvelli í kvöld. „Við náum að spila þétt í dag og þegar það gengur illa þarf að byrja frá aftasta manni og byrja upp á nýtt í sjálfu sér og við gerðum það ágætlega í dag.“ Fram brotnaði ekki við að lenda snemma undir eins og hætt er við þegar illa hefur gengið. „Þar sem ekkert hefur gengið það sem af er sumars gerist það ósjálfrátt að menn falla til baka en okkur tókst að ráða ágætlega við það. Við unnum ágætlega úr því.“ „Leikurinn opnaðist eftir að við skoruðum og við náðum ágætum spil köflum og spiluðum okkur upp völlinn og fáum fín færi sem hefur vantað hjá okkur en við náðum því miður ekki að klára nema eitt í dag.“ Arnar Gunnlaugsson heldur áfram að skora fyrir Fram og hefur sem fyrr skorað öll mörk liðsins á tímabilinu en Arnar hefði hæglega getað skorað meira í leiknum. „Hann hefði getað gert það en það er ekki alltaf hægt að treysta á hann. Hann fékk góð færi í kvöld og hefði að öllu jöfnu klárað þessi færi en það datt ekki fyrir hann í dag.“ Jón Guðni gat ekki svarað því með vissu hvort þetta hefði verið kveðjuleikur hans með Fram eða hvort hann leiki með liðinu eftir EM U-21 árs landsliða áður en hann heldur til Belgíu. „ Ég veit það ekki endanlega, það er eitthvað sem liðin ráða og ég geri bara eins og mér er sagt,“ sagði Jón Guðni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Sjá meira