Umfjöllun: Ingimundur Níels hetja Fylkis Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Fylkisvelli skrifar 30. maí 2011 14:41 Gylfi Einarsson, fyrirliði Fylkis, í leik gegn FH á dögunum. Mynd/Valli
Fylkir vann í kvöld 2-1 sigur á Keflavík en það var Ingimundur Níels Óskarsson sem skoraði bæði mörk sinna manna í leiknum og sigurmarkið í lok venjulegs leiktíma. Jóhann Birnir Guðmundsson skoraði kom Keflavík yfir snemma leiks en Ingimundur Níels Guðmundsson jafnaði metin fyrir heimamenn. Þannig var staðan í hálfleik og lengi vel leit út fyrir að þetta yrði lokastaðan í leiknum. En Fylkismenn voru líklegri til að skora í seinni hálfleik og náðu loksins sigurmarkinu á ellefu stundu. Ingimundur Níels var þar aftur að verki og tryggði hann sínum mönnum góð þrjú stig á heimavelli. Leikurinn byrjaði með látum. Jóhann Birnir gerði mjög vel þegar hann fékk boltann rétt utan vítateigs og skoraði með hnitmiðuðu skoti strax á þriðju mínútu leiksins. Fylkisvörnin var ekki mætt til leiks, eins og stundum er sagt. Keflvíkingar héldu áfram að pressa heimamenn eftir þetta en Fylkismenn fóru þó hægt og rólega að ná betri tökum á sínu spili og skapa sér nokkur ágæt færi. Andrés Már átti til að mynda skot í stöng á nítjándu mínútu og stuttu síðar var Ingimundur Níels kominn í gegn eftir stungusendingu Andrésar en Ómar í marki Keflavíkur varði vel frá honum. Ingimundur Níels gerði þó engin mistök þegar hann jafnaði metin á 23. mínútu. Hann fékk sendingu inn í teig, tók boltann snyrtilega niður og setti hann með glæsilegri hliðarklippingu, ef svo má að orði komast. Þegar um hálftími var liðinn af leiknum komst svo Albert Brynjar í gott skallafæri eftir fyrirgjöf Baldurs Bett en sá fyrrnefndi var dæmdur rangstæður. Keflavík átti þó sín hálffæri í fyrri hálfleiknum en Fjalar var vandanum vaxinn í markinu. Greinilegt var að hvorugt lið vildi gefa færi á sér í seinni hálfleik því afskaplega lítið markvert gerðist lengi vel. Fylkismenn voru þó gráðugri aðilinn, sem fyrr segir, og uppskáru fyrir það síðbúið sigurmark. Fylkir – Keflavík 2-1Dómari: Erlendur Eiríksson (8)Skot (á mark): 12–11 (7-5)Varin skot: Fjalar 4 – Ómar 4Hornspyrnur: 8–2Aukaspyrnur fengnar: 10–13Rangstöður: 5–2Fylkir (4-3-3): Fjalar Þorgeirsson 6 Andri Þór Jónsson 6 Valur Fannar Gíslason 7 Þórir Hannesson 6 Tómas Þorsteinsson 6 Ásgeir Börkur Ásgeirsson 6 Baldur Bett 5 (68. Rúrik Andri Þorfinsson 5) Gylfi Einarsson 6 (85. Andri Már Hermannsson -) Andrés Már Jóhannesson 7Ingimundur Níels Óskarsson 8 – maður leiksins Albert Brynjar Ingason 6 (74. Kjartan Ágúst Breiðdal -)Keflavík (4-3-3): Ómar Jóhannsson 6 Goran Jovanovski 5 Adam Larsson 6 Haraldur Freyr Guðmundsson 6 Viktor Smári Hafsteinsson 6 Andri Steinn Birgisson 6 Einar Orri Einarsson 5 Jóhann Birnir Guðmundsson 6 (83. Bojan Stefán Ljubicic -) Hilmar Geir Eiðsson 4 Magnús Sverrir Þorsteinsson 4 (63. Magnús Þórir Matthíasson 5) Guðmundur Steinarsson 6
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira