Íslenski boltinn

Ingimundur: Rosalega stoltur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ingimundur Níels Óskarsson var hetja Fylkis en hann skoraði bæði mörk sinna manna í 2-1 sigri á Keflavík í kvöld.

„Ég er rosalega stoltur og við ætluðum okkur að taka þrjú stig hér í dag og það tókst,“ sagði Ingimundur Níels eftir leikinn.

„Mér fannst við vera betri aðilinn allan leikinn og sigurmarkið alltaf á næsta leiti. Við hefðum getað klárað leikinn í fyrri hálfleik en þetta fór svona núna.“

Hann segir að Fylkisliðið sé að spila mun betur en á síðasta tímabili. „Mér finnst við alltaf vera að bæta okkar leik smátt og smátt. Það er í raun allt annað að sjá okkur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×