Hagnaður tryggingarfélaga rúmir 4 milljarðar í fyrra 3. maí 2011 09:10
Samanlagður hagnaður skaðatryggingafélaga á árinu 2010 var um 4,1 milljarðar kr. Þar af hagnaðist Viðlagatrygging sem er ríkisstofnun sem starfar samkvæmt sérlögum og býr við sveiflukennda starfsemi, um rúma 2,1 milljarða kr. Þetta kemur fram á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins. Þar segir að sé horft framhjá Viðlagatryggingu er hagnaður skaðatryggingafélaga rétt um 2 milljarðar kr. Hagnaður af vátryggingastarfsemi var 2,6 milljarðar kr. en hins vegar var tap af fjármálastarfsemi sem nam tæpum 600 milljónum kr. Helsta ástæða þess taps eru gjöld vegna matsbreytinga á fjárfestingum sem samanlagt námu tæpum 2 milljarða kr. á árinu. Eignir skaðatryggingafélaganna námu rúmlega 124 milljörðum kr. í árslok 2010, samanborið við tæplega 118 milljarða kr. árið áður og hækkuðu um 5,7%. Eigið fé skaðatryggingafélaganna hækkaði einnig, eða um 8,5% og er nú samanlagt rúmlega 52 milljarðar kr., eða 35 milljarðar kr. án Viðlagatryggingar. Staða eigin fjár er misjöfn á milli félaga. Ekkert skaðatryggingafélag greiddi arð á síðasta ári. Eins og árið áður voru öll líftryggingafélögin rekin með hagnaði á árinu 2010. Samanlagður hagnaður þeirra dróst þó saman um 14,3% og var 1,4 milljarðar kr. samanborið við tæplega 1,7 milljarða kr. hagnað árið áður. Samanlagðar eignir líftryggingafélaganna voru 14,3 milljarðar kr. í árslok 2010, sem er 6,1% aukning frá árslokum 2009. Eigið fé líftryggingafélaganna var 6,0 milljörðum kr. sem er 12,8% hækkun frá árinu áður. Þrjú stærstu líftryggingafélögin greiddu arð á árinu 2010, samanlagt 1,2 milljarða kr. Á árinu áður námu arðgreiðslur tveggja líftryggingafélaga 800 milljónum kr.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira