Arion banki býður hagstæð íbúðalán 6. maí 2011 11:15
Viðskiptavinum Arion banka bjóðast ný og hagstæð íbúðalán frá og með mánudeginum 9. maí. Lánin bera fasta vexti út lánstímann sem eru betri en þau vaxtakjör sem nú bjóðast á íslenskum bankamarkaði. Í tilkynningu segir að um sé að ræða verðtryggð íbúðalán. Annars vegar lán sem nema allt að 60% veðhlutfalli fasteignar, bera 4,30% fasta vexti og eru til 25 eða 40 ára. Hins vegar viðbótarlán sem nema frá 60% til 80% veðhlutfalli fasteignar, bera 5,40% fasta vexti og eru til allt að 25 ára. Til að eiga kost á láni þurfa viðskiptavinir að standast greiðslumat bankans. „Það er hlutverk fjármálastofnana að bjóða viðskiptavinum sínum fjölbreytta fjármálaþjónustu. Lán til íbúðakaupa eru liður í því. Síðan Arion banki var stofnaður hefur höfuðáhersla í starfi bankans verið á úrlausn skuldamála, en nú sér fyrir enda þeirrar vinnu,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka í tilkynningunni. „Við teljum mikilvægt að bjóða viðskiptavinum okkar upp á þennan nýja fjármögnunarkost og viljum gera það á ábyrgan hátt. Þannig kalla þessi nýju lán á að minnsta kosti 20% eiginfjárframlag lántakans og að hann standist ítarlegt greiðslumat bankans. Vaxtakjör lánanna upp að 60% veðsetningarhlutfalli eru vissulega hagstæð en lán umfram 60% veðsetningarhlutfall bera hærri vexti og geta að hámarki verið til 25 ára. Með þessu fyrirkomulagi er skuldsetningu lántaka sett skynsamleg mörk, en vextir lánanna eru hagstæðir og með þessu er Arion banki að svara kalli viðskiptavina um fjölbreyttari fjármögnunarkosti.“
Mest lesið Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Blöskraði dekkjaverð á Íslandi og sparaði sér á þriðja hundrað þúsund Viðskipti innlent Verja tuttugu milljónum króna á dag í loðnuleit í von um tugmilljarða vertíð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Sjá meira