Körfubolti

Brynjar Þór: Auðveldasti titillinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Brynjar Þór Björnsson varð í kvöld Íslandsmeistari í þriðja sinn með KR og segir hann þennan titil hafa verið þann auðveldasta á ferlinum.

„Þetta var auðveldasti titillinn. Við vorum miklu betri en þetta var hrikalega ljúft engu að síður,“ sagði hann en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. „Við ætluðum að sýna að við værum með besta liðið og ég held að allir geti nú samþykkt það.“

Hann hrósaði einnig stuðningsmönnum KR mikið en þeir létu mikið í sér heyra í Ásgarði í kvöld, þar sem að KR tryggði sér titlinn með öruggum sigri á Stjörnunni.

„Þetta eru eintómir snillingar. 65 mínútum fyrir leik var röð út að dyrum hér uppi og ekki einn Stjörnumaður þar á meðal. Þeir höfðu greinilega ekki trú á sínum mönnum en okkar stuðningsmenn voru algjörir snillingar.“

„Þeir hafa verið frábærir í vetur og gáfu okkur aukakraft í kvöld þegar illa gekk. Þetta var hrikalega ljúft.“


Tengdar fréttir

Umfjöllun: KR Íslandsmeistari eftir sannfærandi sigur í Garðabænum

KR-ingar eru Íslandsmeistarar í körfubolta karla í þriðja sinn á fjórum árum og í tólfta sinn frá upphafi eftir sannfærandi fjórtán stiga sigur á Stjörnunni í kvöld, 109-95, í fjórða leik liðanna úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla í Ásgarði í Garðabæ. KR vann því úrslitaeinvígið 3-1.

Fannar: Tilfinningin alltaf betri og betri

Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, lyfti í kvöld Íslandsmeistarabikarnum á loft í þriðja sinn á ferlinum - ávallt með KR. Hann varð Íslandsmeistari í fimmta sinn alls en hann náði þeim áfanga tvívegis er hann spilaði með Keflavík.

KR Íslandsmeistari 2011 - myndir

Það var glatt á hjalla hjá KR-ingum í Ásgarði í gær en þá varð körfuboltalið félagsins Íslandsmeistari eftir afar sannfærandi sigur á Stjörnunni. KR vann einvígi liðanna, 3-1.

Finnur: Það var komin tími á mig

„Þetta er yndisleg tilfinning, ég er búin að horfa á bræður mína báða taka þennan titil, en núna var komið að mér,“ sagði Finnur Atli Magnússon, leikmaður KR, eftir leikinn í kvöld. KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn gegn Stjörnunni í Ásgarði í kvöld eftir að hafa unnið einvígið 3-1.

Teitur: KR-ingarnir bara betri

Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, segir að betra liðið hafi unnið rimmuna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta en KR varð í kvöld meistari eftir sigur á Stjörnunni, 3-1, í lokaúrslitunum.

Marcus: Frábært að spila fyrir framan þetta fólk

„Ég get ekki útskýrt hvernig mér líður,“ sagði Marcus Walker, leikmaður KR, eftir sigurinn gegn Stjörnunni í kvöld. KR varð Íslandsmeistari eftir að hafa unnið Stjörnuna 3-1 í einvíginu.

Pavel: Ég á heiminn

„Manni líður bara eins og ég eigi heiminn,“ sagði Pavel Ermolinskij, leikmaður KR, eftir að lið hans hafði hampað Íslandsmeistaratitlinum í Iceland-Express deild karla. KR vann Stjörnuna 3-1 í einvíginu um titilinn stóra.

Brynjar um Walker: Stórkostlegur

"Hann er stórkostlegur og það var ótrúlegt að fylgjast með því hvernig honum óx ásmegin eftir því sem leið á tímabilið.“

Hrafn: Ég svíf um á skýi

„Ég er bara í skýjunum og svíf bara um,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir að lið hans hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deilda karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×