Opið bréf til stjórnlagaráðsfulltrúa Kristbjörg Þórisdóttir skrifar 31. mars 2011 14:03 Ég er ein þeirra sem bauð fram til stjórnlagaþings. Í aðdraganda kosninga til stjórnlagaþings óskaði ég ítrekað eftir því að frambjóðendum yrði gert skylt að upplýsa um hagsmunatengsl sín með formlegri hagsmunaskráningu, samanber þeirri sem alþingismenn fylla út og birt er á vefsíðu Alþingis. Ég bendi áhugasömum á þessa slóð: https://www.althingi.is/vefur/hagsmunaskraning_reglur.html. Í því samhengi ritaði ég meðal annars opið bréf til innanríkisráðuneytisins sem bar ábyrgð á kynningu á frambjóðendum. Viðbrögðin létu því miður á sér standa. Skortur á hagsmunaskráningu var þó aðeins einn galli á stjórnlagaþingskosningum eins og alþjóð veit. Ég tel það lykilatriði að þeir einstaklingar sem taka að sér að leggja drög að nýrri stjórnarskrá upplýsi um hagsmunatengsl sín. Nú ítreka ég ákall mitt og spyr það ágæta fólk sem mun á næstu dögum setjast í stjórnlagaráð hvort það muni upplýsa um hagsmunatengsl sín með formlegri hagsmunaskráningu? Þannig geta þessir fulltrúar sýnt í verki þau vinnubrögð sem kallað hefur verið eftir, m.a. um aukið gagnsæi.Verkefni sem á sér enga hliðstæðuStjórnlagaráðsfulltrúar eru einstaklingar sem boðið hafa fram krafta sína til þess að taka þátt í sögulegri endurskoðun nýrrar stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Ekki aðeins endurskoðun heldur er þetta í fyrsta skipti sem íslenska þjóðin sem lýðveldi setur sína eigin stjórnarskrá. Verkefnið á sér því enga hliðstæðu. Ábyrgð þeirra er gríðarlega mikil og snýst um að leggja drög að sáttmála fyrir okkur öll um það hvernig samfélag við viljum byggja hér.Verkefni sem þarf að vanda tilHluta þeirra orsaka sem ollu því að hérlendis hrundi efnahagskerfið má rekja til kunningjasamfélagsins, ógagnsæis, ófaglegra vinnubragða og skorts á formfestu. Þetta kemur meðal annars fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Til þess að stjórnlagaráð og fulltrúar þess njóti þess trausts sem nauðsynlegt er til þess að árangur náist tel ég grundvallaratriði að slík hagsmunaskráning fari fram og verði gerð aðgengileg almenningi.Drög að nýrri stjórnarskrá send í dóm þjóðarinnar áður en þingið fær þau til meðferðar Ég er ein þeirra sem hef efasemdir um trúverðugleika stjórnlagaráðs í ljósi þess hvernig til þess var stofnað. Þetta er engu að síður niðurstaðan og ég tel mikilvægt að spila sem best úr þeirri stöðu sem raunin er. Góð og vönduð stjórnarskrá er takmarkið þó ég hefði viljað sjá aðra leið farna að því markmiði. Hagsmunaskráning er ein leið til þess að auka trúverðuleika þeirra sem sitja í stjórnlagaráði. Einnig tel ég grundvallaratriði að þau drög sem stjórnlagaráð leggur fram verði send í dóm þjóðarinnar þar sem kosið verði um einstaka kafla og/eða greinar áður en Alþingi fær þau til afgreiðslu. Stjórnlagaráð verður dæmt af verkum sínum og ég vona að þrátt fyrir þessa brösugu byrjun komi góð og vönduð stjórnarskrá sem leggur grunninn að betra samfélagi á Íslandi. Þá ætti við stjórnlagaþing eins og oft er sagt að „fall sé fararheill". Að lokum óska ég stjórnlagaráðsfulltrúum til hamingju með tilnefninguna ásamt því að óska þeim farsældar í þeirri miklu og mikilvægu vinnu sem framundan er fyrir íslenska þjóð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun