Guðjón: Þetta er svakalegur léttir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2011 19:00 Guðjón Baldvinsson Mynd/Daníel
Guðjón Baldvinsson er búinn að ganga frá nýjum þriggja ára samningi við KR og mun spilar með Vesturbæjarliðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Guðjón fékk sig lausan frá sænska liðinu GAIS sem hafði lánað hann til KR síðasta sumar. „Þetta er svakalegur léttir enda búið að vera óvissuástand í langan tíma. Það er mjög góð tilfinning að þetta sé búið," sagði Guðjón í samtali við Vísi í kvöld. „Það var ljóst að ég væri ekki fara aftur út. Það gekk vel á síðasta tímabili en samt komu engin viðbrögð frá þeim. Maður fann strax að maður var ekki að fara þangað aftur á meðan þessi þjálfari var þar. Það fannst lausn á því sem ég er mjög sáttur við. Ég var ekki spenntur fyrir því að fara aftur á láni. Ég er með fjölskyldu og vill fá smá festu í þetta núna," segir Guðjón sem skoraði 10 mörk í 13 leikjum með KR í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili. „Ég var ánægður með síðasta sumar fyrir utan meiðslin. Það er búið að vera hrjá mig síðustu tímabil að ég hef bara náð örlitlu af tímabilinu. Nú er stefnan sett á það að halda sér heilum og reyna að gera eitthvað af viti," segir Guðjón sem ætlar að setja drauminn um atvinnumennsku upp á hillu í bili. „Ég er farinn að einbeita mér að öðru núna en að komast út í atvinnumennsku. Ég er með fjölskyldu og okkur líður vel í KR. Núna ætla ég bara að halda áfram í skólanum og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið.Ef eitthvað kemur upp þá skoða ég það en það þarf að vera eitthvað betra en það sem maður var í síðast til þess að maður hendi sér í það aftur," sagði Guðjón. „Ég er ekkert að fara á taugum þótt að ekkert gerist. Ég ætla að bara að einbeita mér að því að standa mig hjá KR og reyna að vinna einhverjar dollur. Svo kemur bara tilboðið þegar það kemur. Við höfum verið að ná vel saman á undirbúningstímabilinu og loksins er komin smá reynsla á liðið. Við erum búnir að spila flestir saman í smá tíma og þetta er ekki nýtt lið eins og hefur verið síðustu ár. Ég bind góðar vonir við það að það eigi eftir að reynast okkur vel," sagði Guðjón sem er bjartsýnn og spenntur fyrir sumrinu með KR.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira