Hannes: Spila með FH ef ég verð heima Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. mars 2011 16:15 Hannes Þ. Sigurðsson. Mynd/Heimasíða Sundsvall
Hannes Þ. Sigurðsson segir að hann muni taka ákvörðun á allra næstu dögum hvort hann verði heima á Íslandi nú í sumar. Hannes hefur verið án félags síðan að samningur hans við sænska félagið GIF Sundsvall rann út í haust. Áður hefur komið fram að hann hafði úr nokkrum tilboðum að velja í vetur en ekkert hefur enn orðið að því að hann hafi samið við félag. Hann segir í viðtali við Vísi að meiðsli hafi sett strik í reikninginn. „Ég hef verið meiddur síðan í desember og finn að ég á enn nokkuð í land. Ég er þó byrjaður að æfa á ný og hef verið að koma mér aftur af stað - þetta er þó allt á réttri leið." Hannes hefur verið að æfa með FH í Hafnarfirðinum en þar er hann uppalinn. „Mér líst alls ekki illa á að vera heima í sumar. Við sjáum hvernig mín mál munu þróast á næstu dögum en ég stefni á að taka ákvörðun sem allra fyrst," sagði hann en Hannes hefur verið að æfa með uppeldisfélagi sínu, FH, nú í vetur. „Það er frábært að æfa í Krikanum enda aðstaðan þar mjög góð. Það eru líka góðir leikmenn og þjálfarar hjá FH og mér hefur alltaf liðið vel hjá FH. Ef ég verð heima þá sé ég ekki fyrir mér að ég muni spila með nokkru öðru liði." Hann segir að enn sé verið að vinna í sínum málum utan landsteinana. „Þannig hefur það verið síðustu vikur og mánuði. Ég hef fengið fullt af möguleikum en sem hafa farið í súginn, ýmist vegna meiðsla eða einfaldlega vegna þess að ekki náðust samningar. En ég hef ekki verið að stressa mig mikið á þessu og ég ætla ekki að taka einhverju tilboði bara til þess að komast út. Það sem er mikilvægast í augnablikinu er að ná mér góðum af þessum meiðslum svo ég geti byrjað að spila aftur." „Það sem er mikilvægast er að manni líði vel og því ætla ég að taka rétta ákvörðun."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira