Slúðrandi fjölmiðlun Sigurður Einarsson skrifar 18. mars 2011 06:15 Umfjöllun íslenskra fjölmiðla í kjölfar hins alþjóðlega fjármálahruns hefur því miður oft á tíðum einkennst af slúðri og slagorðum. Það er vond blanda og ekki einungis skaðleg fyrir fórnarlömbin hverju sinni heldur alla umræðu í landinu, sem bæði verður neikvæð og afturvirk. Þegar til lengri tíma er litið kann það að verða dýrkeypt fyrir allt samfélagið. Hjá fjölmiðlunum virðast „kröfur markaðarins" oftast ráða för í efnistökunum, rétt eins og lýðhyllin virðist stýra stjórnmálamönnum en ekki leiðsögnin sem þeim er ætlað að veita. Hraðinn í fréttaflutningi og e.t.v. fjárskortur í ofanálag virðist bitna á metnaði og gæðum. Ég hef að öllu jöfnu ekki hirt um að elta ólar við ónákvæmni eða uppspuna í umræðunni en um þessar mundir fæ ég þó ekki lengur orða bundist og leyfi mér að benda á nokkur dæmi um óvandaða blaðamennsku á undanförnum dögum. 1. Ég hygg að flestir fjölmiðlar hafi sagt frá því að mér og reyndar öllum öðrum sem handteknir voru í tengslum við húsleitir Serious Fraud Office, SFO, og Sérstaks saksóknara í London og á Íslandi hafi verið sleppt sama kvöld „gegn tryggingu". Sjálfur var ég frjáls ferða minna í eftirmiðdag þessa dags eftir 15 mínútna langa yfirheyrslu og ekki krafinn um neinar tryggingar frekar en aðrir sem færðir voru til yfirheyrslu. Enginn þessara fjölmiðla gaf sér tíma til að spyrja um hvers konar tryggingar væri að ræða. Bullið tók hver miðillinn upp eftir öðrum og enginn þeirra hefur séð ástæðu til að leiðrétta sig. 2. Önnur ónákvæmni fjölmiðlanna þar sem hver étur upp eftir öðrum er að handtökur hafi verið framkvæmdar í kjölfar húsleitar. Um leið er gefið í skyn að við húsleitirnar hafi fundist gögn sem réttlættu handtökur. Það er rangt. Hins vegar voru menn færðir til yfirheyrslu samhliða húsleitum. Á þessu tvennu er mikill munur – en fjölmiðlum stendur á sama. 3. Sérstakur saksóknari hélt því fram í upphafi að hann kæmi hvergi nærri þessum húsleitum heldur væru þær alfarið á vegum SFO í London. Á sama tíma mætti Björn Þorvaldsson aðstoðarsaksóknari á heimili mitt í London og reyndi að dyljast í stórum hópi innfæddra án þess að gera grein fyrir sér. Þegar á hann var gengið sérstaklega sagðist hann vera túlkur til aðstoðar ef einhver grunsamleg skjöl fyndust á íslensku. Hvort Björn hafi löggildingu sem slíkur læt ég ósagt um. 4. Fréttastofa RÚV hefur á sínum snærum sérstakan pistlahöfund í London, Sigrúnu Davíðsdóttur. Hún hefur gefið sig út fyrir yfirgripsmikla þekkingu á málefnum Kaupþings í aðdraganda falls bankans og hefur ekki tekið fyrrverandi stjórnendur bankans neinum vettlingatökum. Hún setti hins vegar á sig silkihanskana þegar hún tók hátíðarviðtal við fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, Alistair Darling, og leyfði honum án nokkurrar gagnrýni eða athugasemda að klifa á sinni gömlu lygamöntru um óeðlilega flutninga fjármagns til Íslands. Vafalaust átti þessi skáldskapur Darling stóran þátt í því að Bretar ákváðu að fella Kaupthing Singer Friedländer á sama tíma og þeir komu fjölmörgum öðrum breskum og mun verr stöddum bönkum til hjálpar. Sú mismunun er mér enn óskiljanleg – og sömuleiðis sú ákvörðun Breta að beita hryðjuverkalögum á Lands- og Seðlabankann með skelfilegum afleiðingum fyrir samfélagið. Um þetta hirti hin sérfróða fréttakona RÚV ekki að spyrja enda þótt sjálfur fjármálaráðherra Breta á þessum tíma sæti fyrir framan hana. Hún bugtaði sig og beygði í lotningu fyrir viðmælanda sínum og leyfði honum að nota sig sem krana fyrir eldgamla og úrelta lygasögu. Sigrúnu var sama um sannleikann. Ríkisútvarpinu líka. Og öðrum fjölmiðlum. Hvergi er risið upp til að rannsaka eða mótmæla þessum rakalausu dylgjum. 5. Íslenskir fjölmiðlar hafa á undanförnum dögum margtuggið það upp úr breskum fjölmiðlum að tjón breskra skattgreiðenda af Kaupthing Edge reikningum og starfsemi Kaupthing Singer Friedländer þar í landi eigi eftir að leika á milljörðum punda. Engin tilraun er gerð til að sannreyna þessar staðhæfingar heldur látið nægja að endurflytja þær sem staðreyndir. Hið rétta er að enn er óljóst hvort eitthvert tjón verður af starfseminni, jafnvel þótt bankinn hafi verið felldur, þar sem ágætlega hefur gengið að innheimta eigur hans. Hið háa endurheimtuhlutfall staðfestir það sem stjórnendur KSF hafa alltaf haldið fram en það er að bresk stjórnvöld hafi gert skelfileg mistök þegar þau ákváðu að meðhöndla KSF öðruvísi en alla aðra breska banka haustið 2008. Um þetta er íslenskum fjölmiðlum sama. Sönglið skal snúast um tjónið af völdum bankanna – ekki Bretanna. 6. Og nú síðast kemur fram enn einn fjölmiðlamaðurinn sem nærist á sviðsljósinu og heldur því fram að í gömlum bankahvelfingum Kaupþings í Lúxemborg liggi vandlega þvegnir leynisjóðir frá nafngreindu rússnesku gasfyrirtæki. Ásakanir um peningaþvætti eru um leið ásakanir um alvarlegt lögbrot, í þessu tilfelli bæði bankans og viðskiptavinarins. Atvinnurógur og meiðyrði í fjölmiðlum eru að verða daglegt brauð. Hið rétta er að engin rússnesk fyrirtæki voru nokkru sinni með nokkur viðskipti við Kaupthing Luxembourg. Hið rétta er líka að við endurskipulagningu bankans voru allar innistæður í honum greiddar til eigenda sinna. Uppspuninn um rússneska leynisjóði og peningaþvætti er innistæðulaus þvættingur. Höfundinum Sölva Tryggvasyni er sama. Líka þeim sem gefa hann út. Og aðrir fjölmiðlar láta sér svona smotterí í léttu rúmi liggja. 7. Nýjasta slúðrið er síðan á vefmiðlinum AMX þar sem nafnlausir smáfuglar (litlir í orðsins fyllstu merkingu) hvísla um það í raddstyrk Gróu á Leiti að líklegast séu gömlu stjórnendur Kaupþings og klíkan í kringum þá í broddi fylkingar hins nýja eignarhalds á Arion banka. Enginn fótur er fyrir þessu og væntanlega veit hvíslarinn það jafn vel og allir aðrir. Honum er sama. Eiganda miðilsins er sama. En slúðrið er skemmtilegt og aðalatriðið að skvetta meiri olíu á eldinn og stíga dansinn í kring. Síðasta dæmið um metnaðarleysi fjölmiðlanna, nafnlausa fuglahvíslið á AMX, er alls ekki það alvarlegasta sem ég hef gert að umfjöllunarefni í þessari grein. Það er hins vegar umhugsunarefni hvort ábyrgðarleysi þessa dvergmiðils gefi vísbendingu um það sem hinir stærri leyfi sér líka. Þar undanskil ég engan en vil þó nefna það að Fréttablaðið gerir sig að mínu viti sjaldnar en aðrir sekt um vinnubrögð af því tagi sem ég hef gert að umtalsefni. Ég vil líka vekja sérstaka athygli á því að einn íslenskur fjölmiðill hefur lögbundnar samfélagslegar skyldur enda að fullu í eigu þjóðarinnar allrar. Þess vegna er honum, og ekki síst fréttamönnum hans og pistlahöfundum, gjarnan treyst betur en öðrum. Þessu fólki er fært mikið vald. Það er sorglegt að sjá það oft á tíðum vera sporgengla kollega sinna og jafnvel forystusauði í þjónkun við spurn markaðarins eftir fleiri aftökum á alþingi götunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun