Matthías bað FH um að kalla sig heim Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. mars 2011 10:15 Matthías í leik með FH. Mynd/Valli
Matthías Vilhjálmsson bað félag sitt, FH, um að kalla á sig heim frá enska félaginu Colchester þar sem hann var í láni. Matthías fór utan fyrr í vetur og kom við sögu í þremur leikjum í ensku C-deildinni, ávallt sem varamaður. Hann var ekki ánægður með stöðu sína hjá liðinu en í viðtali við vefsíðuna fhingar.net segir hann reynsluna hafa engu að síður verið lærdómsríka. „Ég hefði að sjálfsögðu viljað fá fleiri tækifæri en það er ekkert gefið í þessum heimi," sagði Matthías. „Eftir að hafa lagt höfuðið í bleyti seinustu vikur þá taldi ég það hárrétt í stöðunni að koma heim aftur og æfa eins vel og ég gæti með FH í staðinn fyrir að vera á bekknum eða fyrir utan hóp Colchester United," bætti hann við. „Æfingar voru því afar rólegar og taktískar og ferðalögin ekki þess virði að vera þarna ef ég fengi engin tækifæri sem ég taldi mig að sjálfsögðu eiga skilið miðað við frammistöðu liðsins þann tíma sem ég var þarna. Liðið skoraði 11 mörk í þeim 12 leikjum sem ég var til taks og töpuðu hverjum útileiknum á fætur öðrum. Sóknarspilið gekk ekki vel og ég taldi mig eiga að fá séns en þjálfaranum greinilega ekki. Þannig að eftir nokkra umhugsun bað ég FH um að kalla mig heim." „Ég er fyrst um fremst ótrúlega glaður að vera kominn heim aftur og geta einbeitt mér algjörlega að FH núna og njóta fótboltans í sumar. Skilaboðin til stuðningsmannana eru þau að ef við leikmenn verðum jafngóðir og seinustu ár og stuðningsmennirnir líka að þá verður þetta sumar frábært."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira