Andri: Verið erfitt fyrir alla aðila Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. mars 2011 15:30 Mynd/GVA
Andri Marteinsson er því feginn að hann sé búinn að ganga frá samningum við Víking og hlakkar til sumarsins sem er fram undan. Andri var í dag ráðinn þjálfari liðsins í stað Leifs Garðarssonar sem var vikið úr starfi í síðustu viku. Andri hefur þjálfað lið Hauka undanfarin ár en hætti hjá félaginu í gær. „Þetta er vissulega mjög sérstakt og þetta hefur verið mjög erfitt ferli fyrir alla aðila. Haukarnir leika líka stórt hlutverk í þessu enda þurftu þeir að finna nýjan þjálfara. Þeir hafa brugðist vel við því og klárað sín mál fljótt og vel," sagði Andri en í dag var tilkynnt að Magnús Gylfason væri nýr þjálfari Hauka. „Þetta er búið að vera erfitt og ég er ánægðastur með að þetta hafi allt fengið farsælan endi." Andri hefur nú tæpa tvo mánuði til að koma sínum áherslum til skila en keppni í Pepsi-deild karla hefst þann 1. maí næstkomandi. „Ég veit að ég er að taka við góðu búi. Leifur er búinn að byggja upp leikmannahóp liðsins en að öllu öðru leyti verður mitt handbragð á liðinu. Það mun koma fram í því hvernig leikir liðsins verða lagðir upp, hvernig liðinu verður stillt upp og hvernig það muni spila." „Ég á eftir að sanna mig fyrir hópnum og það er verðugt verkefni að fá hópinn til að hafa trú á því sem ég hef fram að færa. Ef það gengur vel er ég bjartsýnn á sumarið. Það er óþarfi að vera með flotta umgjörð í kringum liðið eins og er hér í Víkinni ef liðið er ekki tilbúið." Andri er sjálfur uppalinn Víkingur og lék með liðinu á níunda áratug síðustu aldar. Víkingur varð Íslandsmeistari árið 1991 en Andri fór frá liðinu og gekk til liðs við FH aðeins tveimur árum áður. „Ég missti af titlinum. Það er því ákveðinn hvati fyrir mig að reyna að kvitta fyrir það með því að vinna titilinn hér með Víkingum þetta mörgum árum síðar," sagði hann og brosti.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Andri ráðinn til Víkings - Magnús tekur við Haukum Andri Marteinsson hefur verið ráðinn þjálfari Víkings til næstu þriggja ára. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Víkinni nú rétt í þessu. 9. mars 2011 11:02 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira
Andri ráðinn til Víkings - Magnús tekur við Haukum Andri Marteinsson hefur verið ráðinn þjálfari Víkings til næstu þriggja ára. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Víkinni nú rétt í þessu. 9. mars 2011 11:02