Það er eitthvað rotið Ólöf Guðný Valdimarsdóttir skrifar 27. febrúar 2011 08:00 "Landsvirkjun borgaði dómurum 40 milljónir fyrir dómsniðurstöðu.” Vonandi hrökkva einhverjir við þegar þeir sjá svona vitleysu skrifaða. Það hrukku líka margir við þegar spurðist að Landsvirkjun hefði borgað sveitarstjórnum fyrir austan fyrir stefnumótun í aðalskipulagi og fulltrúum almennings í sveitarstjórn Flóahrepps fyrir að skipta um skoðun þegar sveitarstjórn hafði samþykkt að Urriðafossvirkjun yrði ekki inni á aðalskipulaginu. Gjafir Landsvirkjunar eru kallaðar mótvægisaðgerðir sem þýðir að þetta eru aðgerðir til að lágmarka óafturkræf umhverfisáhrif Urriðafossvirkjunar í Þjórsá og nágrenni. Ekkert af þeim minnkar umhverfisáhrif af Urriðafossvirkjun.Gjafir Landsvirkjunar Ágætt yfirlit er yfir “mótvægisaðgerðir” Landsvirkjunar í góðri grein eftir sveitarstjórnarkonu í Flóahreppi hér á vefnum undir yfirskriftinni: “Urriðafossvirkjun – upprifjun.” Þar kemur fram að Landsvirkjun lagði fram eingreiðslu 40 milljónir til sérverkefna tengdum vatnsöflunarmálum í sveitarféalginu. Landsvirkjun mun bera allan kostnað af gerð deiliskipulags af virkjunarsvæði Urriðafossvirkjunar ásamt tilheyrarndi greinargerðum vegna skipulagsvinnu og framkvæmdaleyfis. Landsvirkjun greiðir að fullu kostnað sem sveitarfélagið kann að verða fyrir við aðal- og deiliskipulagsvinnu vegna virkjunarinnar. Landsvirkjun mun kosta lögn nýrrar aðveitu vatnsveitu sveitarfélagsins, nægilega miðlun vatnsins með tilliti til dreifingar um allt sveitarfélagið og byggingu miðlunartanks ef með þarf. Landsvirkjun endurbyggir vegakafla frá þjóðvegi 1 um sveitarfélagið að Gaulverjabæ með bundnu slitlagi. Og Landsvirkjun gerir endurbætur á GSM símakerfi í sveitarfélaginu þannig að gott farsímasamband verði í sveitarfélaginu með uppsetningu nýs sendis neðarlega í sveitarfélaginu og styrkingu núverandi senda ef með þarf. Niðurstaða dómstóla Sveitarstjórnarmönnum í Flóahreppi fannst svo sjálfsagt að þiggja þessar gjafir frá Landsvirkjun í kaupum fyrir Urriðafossvirkjun að þeir hrukku við þegar umhverfisráðherra leyfði sér að benda á að ekki væri lagaheimild fyrir greiðslu vegna aðalskipulags í skipulags- og byggingarlögum. Þeir kærðu málið umsvifalaust til dómstóla. Skyldi það líka hafa verið í boði Landsvirkjunar? Dómstólar komust að því að þar sem ekki stæði í lögunum að ekki mætti greiða fyrir aðalskipulag þá mætti það. Hvers vegna er þá sérstaklega tekið fram í lögunum að landeiganda eða framkvæmdaraðila sé heimilt að gera tillögu til sveitarstjórnar að deiliskipulagi eða breytingu á deiliskipulagi á sinn kostnað? Þessari gjaldtökuheimild var bætt inn í lögin árið 2000 en engu um gjaldtökuheimild fyrir aðalskipulag. Og hvernig er hægt að rugla þessu saman við heimild til gjaldtöku fyrir framkvæmdaleyfi sem eiga að vera í samræmi við skipulag? Niðurstaða dómstóla segir á hvaða leið þjóðfélagið er. Og nú er aðalmálið að umhverfisráðherra segi af sér. Viljum við svona Þjóðfélag? Kjarni málsins snýst um hvernig þjóðfélagi við viljum búa í. Viljum við svona gjörninga og svona þjóðfélag. Viljum við að það sé sjálfsagt og viðtekið að fyrirtæki borgi háar fjárhæðir og beri gjafir á sveitarfélög í skiptum fyrir umdeildar framkvæmdir. Gjafir fyrirtækja í almannaeigu sem almenningur þarf að borga í auknum álögum þegar upp er staðið. Ef ekki, þá eigum við ekki og megum ekki þegja yfir svona gjörningi. Hér þarf opna umræðu sem flestra og miklu ásættanlegri niðurstöðu en liggur á borðinu. Siðfræðingar eru sérstaklega hvattir til að blanda sér í umræðuna. Það þarf að mótmæla svona þjóðfélagsþróun. Annars líður ekki á löngu þar til enginn hrekkur við og öllum finnst sjálfsagt ef þessi fyrirsögn birtist í fjölmiðlum: ,,Landsvirkjun borgaði dómurum 40 milljónir fyrir dómsniðurstöðu.” Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Sjá meira
"
Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson Skoðun
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson Skoðun