Jónas fyrirgefur Guðjóni gömul svik Hans Steinar Bjarnason skrifar 24. október 2011 18:45 Guðjón er líklega á leið til Grindavíkur
Jónas Þórhallsson býður sig fram til formennsku hjá knattspyrnudeild Grindavíkur í stað Þorsteins Gunnarssonar sem ætlar að hætta vegna yfirvofandi ráðningar Guðjóns Þórðarsonar. Jónas fyrirgefur Guðjóni sjö ára gömul svik og stefnir á titilinn á næsta ári. Stjórn knattspyrnudeildar samþykkti í gær með sex atkvæðum gegn einu að hefja formlegar viðræður við Guðjón en Ólafur Örn Bjarnason þjálfar liðið ekki áfram í Pepsídeildinni á næsta ári. Þorsteinn sagði við íþróttadeild í morgun að hann sé mótfallinn þessari stefnu í þjálfaramálum og ætlar að láta af störfum á aðalfundi í næstu viku. Hann ætlar líka að hætta markvarðarþjálfun hjá félaginu Jónas Þórhallsson fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar hefur tilkynnt um formannsframboð í stað Þorsteins. Jónas sagði við Stöð 2 að óformlegar viðræður við Guðjón lofi góðu og hann hafi verið hagstæðasti kosturinn af fjórum. Þorsteinn vildi ráða Lárus Orra Sigurðsson og þá voru þjálfarar frá Englandi og Írlandi einnig í myndinni. Jónas segist vera búinn að fyrirgefa Guðjóni atvik frá árinu 2004 þegar gengið hafði verið frá samkomulagi við hann um að þjálfa Grindavík. Guðjón sneri þá baki við Grindvíkingum og réði sig til Keflavíkur. „Ég er kristinn maður og lærði það í góðri bók að fyrirgefa," sagði Jónas við íþróttadeild í dag og sagði Grindavík stefna á Íslandsmeistaratitilinn á næsta ári með Guðjón við stjórnvölinn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira