Hagsmunatog eða hugsjónir Stefanía Kristinsdóttir skrifar 9. febrúar 2011 09:15 Undirrituð er einlægur stuðningsmaður alþjóðlegs samstarfs og telur að það sé grundvöllur þess að stuðla megi að friði og auknum mannréttindum meginþorra mannkyns. Í ljósi þeirra hugsjóna hef ég horft jákvæðum augum á aðild Íslands að ESB sem mér finnst hafa gegnt lykilhlutverki í að koma á friði og aukinni velferð í Evrópu. ESB var sett á laggirnar eftir síðari heimsstyrjöldina til að koma á og viðhalda friði. Þegar múrinn féll var ESB lykilaðili í að nútímavæða og endurbyggja Austur-Evrópulöndin og ef til vill hefði sá gjörningur ekki gengið jafn vel fyrir sig ef ESB hefði ekki verið til staðar. ESB átti ríkan þátt í að binda enda á kalda-stríðið og koma á stöðugleika og hagsæld í fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna. Evrópuumræðan á Íslandi snýst sjaldan um þau atriði sem hér hafa verið nefnd heldur einblína Evrópusinnar og Evrópuandstæðingar á hagsmuni Íslands sem snúa þá yfirleitt að ákveðnum atvinnugreinum t.d. sjávarútvegi og landbúnaði. Hagsmunasamtökin sem hræðast sambandið mest eyða miklum fjármunum og ekki síður pólitískum ítökum í að koma í veg fyrir að þjóðin geti rætt eða tekið ákvörðun um hvernig hún vill þróa samband sitt við ESB. Ég segi sambandið því það er nákvæmlega það sem við erum að tala um, við erum búin að vera trúlofuð ESB síðan 1994 þegar við tókum þátt í EES-samningnum. Þátttaka sem hefur skilað okkur öflugra háskólastarfi og nútímavæðingu menntakerfisins. Nú er spurningin, viljum við ganga lengra í sambandi okkar við Evrópusambandið, viljum við ganga upp að altarinu? Ef við segjum já þá erum við ekki eingöngu að segja að við treystum því að hag okkar sé borgið í sambandinu heldur einnig að við höfum eitthvað fram að færa, að við séum rödd sem ætlar sér að taka virkan þátt í þróun sambandsins. Ef við segjum nei þá erum við að segja að við teljum hag okkar betur borgið utan sambandsins og við teljum að Ísland eigi ekki að vera þátttakandi í þróun samstarfs Evrópuríkja. Það er undir okkur öllum komið að taka þessa ákvörðun og til þess að við getum gert það af einhverju viti þá þurfum við að kynna okkur málin vel. Í upphafi ræddi ég um friðarbandalagið ESB. Nýir tímar kalla á nýjar áherslur og stærsta vandamál jarðarbúa í dag snýr að loftslagsbreytingum og umhverfismálum. Glöggt má sjá þegar rýnt er í áherslur ESB á sviði rannsókna og nýsköpunar að það sem sett er á oddinn er vistvæn orka, orkunýting og rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga á gróðurfar og þar með mannlíf. Nú er ég ekki að segja að samkomur Sameinuðu þjóðanna og OECD hafi ekki sín áhrif á þróun þessara mála en ég tel að virkt samstarf á borð við ESB þar sem til er fjármagn og ferli til að stýra þróunarvinnu sé það eina sem dugar í slíkum málum. Mig grunar að til þess að mannkynið komi sér saman um leiðir að markmiðinu þá þurfi hver og einn að gefa eitthvað eftir af sínu fullveldi og deila gæðum sínum með öðrum þjóðum ekki bara til að auka á hagsæld heldur til að bjarga mannslífum í heimi sem einkennist af fátækt, misrétti og mannréttindabrotum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun