Afstýrum menningarslysi Jóhann Páll Jóhannsson skrifar 31. janúar 2011 12:32 Í borgarstjórn sitja tveir flokkar: Samfylkingin og Besti flokkurinn. Sá fyrrnefndi kennir sig við félagshyggju og jöfn lífstækifæri. Hinn flokkurinn er meðal annars skipaður listafólki og náði kjöri í krafti loforða um skapandi og skemmtilegt samfélag. Það skýtur því skökku við þegar borgaryfirvöld boða til gegndarlausrar niðurrifsstarfsemi í tónlistarskólum Reykjavíkur. Niðurskurður þessa árs nemur 140 milljónum króna auk þess sem borgin mun hætta að greiða með tónlistarnemum sem eru 16 ára og eldri. Engin starfsemi á vegum borgarinnar mætir jafn grimmilegum niðurskurði og tónlistarskólarnir. Augljóslega geta þeir ekki mætt niðurskurðinum á miðju skólaári og því leggst hann á af fullum þunga í byrjun næsta skólaárs. Námi fjölmargra tónlistarnema er þannig stefnt í hættu og ef svo fer sem horfir gæti tónlistarkennsla á mið- og framhaldsstigi að mestu leyti lagst af. Þar með er rekstrargrundvellinum kippt undan sumum tónlistarskólanna, enda hefur Kjartan Óskarsson, skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, lýst því yfir að ef ekki verði fallið frá áformunum verði skólanum, sem í 80 ár hefur verið einn af hornsteinum íslensks tónlistarlífs, sjálfhætt í haust. Almenn tónlistarkennsla er grundvöllur gróskumikils tónlistarlífs. Fyrirhugaður niðurskurður er því ekki aðeins atlaga að tónlistarskólum borgarinnar, heldur hreinlega stríðsyfirlýsing á hendur íslensku tónlistarlífi. Ævintýralönd tónlistarinnar eru sameiginlegur arfur okkar allra. Í velferðarþjóðfélagi hljótum við að krefjast þess að tónlistarnám standi öllum til boða. Því ber okkur að spyrna við fæti og berjast gegn niðurskurðinum með kjafti og klóm. Ég skora á alla tónlistarunnendur að sameinast í baráttunni fyrir samfélagi jafnra tækifæra og blómlegrar menningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Í borgarstjórn sitja tveir flokkar: Samfylkingin og Besti flokkurinn. Sá fyrrnefndi kennir sig við félagshyggju og jöfn lífstækifæri. Hinn flokkurinn er meðal annars skipaður listafólki og náði kjöri í krafti loforða um skapandi og skemmtilegt samfélag. Það skýtur því skökku við þegar borgaryfirvöld boða til gegndarlausrar niðurrifsstarfsemi í tónlistarskólum Reykjavíkur. Niðurskurður þessa árs nemur 140 milljónum króna auk þess sem borgin mun hætta að greiða með tónlistarnemum sem eru 16 ára og eldri. Engin starfsemi á vegum borgarinnar mætir jafn grimmilegum niðurskurði og tónlistarskólarnir. Augljóslega geta þeir ekki mætt niðurskurðinum á miðju skólaári og því leggst hann á af fullum þunga í byrjun næsta skólaárs. Námi fjölmargra tónlistarnema er þannig stefnt í hættu og ef svo fer sem horfir gæti tónlistarkennsla á mið- og framhaldsstigi að mestu leyti lagst af. Þar með er rekstrargrundvellinum kippt undan sumum tónlistarskólanna, enda hefur Kjartan Óskarsson, skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík, lýst því yfir að ef ekki verði fallið frá áformunum verði skólanum, sem í 80 ár hefur verið einn af hornsteinum íslensks tónlistarlífs, sjálfhætt í haust. Almenn tónlistarkennsla er grundvöllur gróskumikils tónlistarlífs. Fyrirhugaður niðurskurður er því ekki aðeins atlaga að tónlistarskólum borgarinnar, heldur hreinlega stríðsyfirlýsing á hendur íslensku tónlistarlífi. Ævintýralönd tónlistarinnar eru sameiginlegur arfur okkar allra. Í velferðarþjóðfélagi hljótum við að krefjast þess að tónlistarnám standi öllum til boða. Því ber okkur að spyrna við fæti og berjast gegn niðurskurðinum með kjafti og klóm. Ég skora á alla tónlistarunnendur að sameinast í baráttunni fyrir samfélagi jafnra tækifæra og blómlegrar menningar.
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun