Brú á milli þings og þjóðar Birgitta Jónsdóttir skrifar 31. desember 2010 06:00 Það er ófriður á Íslandi. Í ranglátu samfélagi ríkir ófriður. Stór hluti almennings hefur glatað trausti á æðstu stofnanir landsins, aðeins 9% aðspurðra treysta Alþingi. Vantraustið hríslast um allt samfélagið, því ráðamenn og stofnanir hafa brugðist trausti fólksins. Við lifum í samfélagi þar sem ljóst er að lögin ná ekki til allra þeirra sem landið byggja. Hinir ósnertanlegu ganga enn um göturnar og halda áfram að þiggja greiða frá stjórnmálafólki sem þykist ekki, þrátt fyrir að sitja að völdum, geta gert neitt til að breyta því ástandi óréttlætis sem við búum við. Til að endurheimta traust þurfa þeir sem hafa völdin að sýna í verki að þeir séu traustsins verðir. Orð skulu standa en ekki vera föl fyrir völd. Skipta þarf út efstu lögum stjórnendaMargir hafa furðað sig á að það fólk sem flestir treystu til að mynda skjaldborg um heimilin í landinu, hafi brugðist því trausti á jafn afgerandi hátt og raun ber vitni. En það er ekkert furðulegt við það. Kerfið sjálft er ónýtt. Hefð hefur skapast fyrir því að ráða fólk eftir flokkskírteinum í efstu lögin á kerfinu. Þeir sem fara með æðstu völdin eru ekki ráðnir eftir menntun, hæfni eða getu. Ef kerfið er eins og skemmd móðurkartafla er ljóst að þeir sem standa henni næst skemmast. Það er nákvæmlega sama hverjir komast til valda - þeir munu skemmast ef ekki verður alvöru uppstokkun í kerfinu. Til hvers að reyna stöðugt að tjasla í götin á ónýtu kerfi þegar tækifæri til endurnýjunar er til staðar? Það er ekki aðeins hérlendis sem fólk hefur gert sér grein fyrir því að kerfi sem þjónar alltaf hinum ósnertanlegu er ekki lengur ásættanlegt. Samhljómur almennings víðs vegar um heim verður sífellt sterkari. Fólk er hætt að bærast sem einstök hálmstrá í vindi. Samstaða er möguleg á víðtækum grunni vegna tilkomu netsins og þar má finna sístækkandi hópa fólks sem er byrjað að undirbúa breytingar í takt við þá staðreynd að við eigum bara eina plánetu og ef heldur fram sem horfir munu lífsgæði barna okkar og barnabarna verða mjög slæm miðað við það sem við höfum fengið að njóta. Stefnuskrá Hreyfingarinnar er einfaldur tékklistiVið í Hreyfingunni höfum stundað tilraunapólitík. Við skilgreinum okkur hvorki til hægri né vinstri. Það er ljóst að sú hugmyndafræði er að renna sitt skeið á enda. Við skilgreinum okkur út frá málefnunum. Þegar stefna Hreyfingarinnar var mótuð í árdaga Borgarahreyfingarinnar var ákveðið að setja saman stefnuskrá sem er tékklisti. Þessari tiltölulegu einföldu stefnu fylgjum við en hún lýtur fyrst og fremst að því að koma hér á víðtækum lýðræðisumbótum. Að færa völd og ábyrgð til almennings. Þetta er hægt að gera með því að lögfesta réttinn til að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslum, persónukjöri þvert á flokka, skera á tengslin milli fyrirtækja og flokka og nýrri stjórnarskrá sem tryggir að auðlindir þjóðar tilheyra henni en ekki hinni ósnertanlegu valdamafíu sem hefur hrifsað til sín þessar auðlindir á markvissan hátt allt frá upphafi hins unga lýðveldis okkar. Almenningur taki þátt í að móta samfélagiðStefnuskráin er grunnstoðin sem við í þinghópnum virðum og vorum kosin út á. Öðrum málum sem ekki falla undir þessa stefnu fylgjum við sem einstaklingar rétt eins og kveður á um í því drengskaparheiti sem við skrifum undir sem nýir þingmenn. Við sækjumst ekki eftir völdum. Sú blinda foringjahollusta sem hefur einkennt mannkynið um árþúsundir er nokkuð sem almenningur verður að láta af. Þessi öld verður öld almennings, ekki leiðtoga. Völdum fylgir mikil ábyrgð. Er almenningur tilbúinn að taka við völdum með því að gefa þau ekki frá sér heldur verða virkir þátttakendur í að móta samfélagið sitt? Ég vona það. Sífellt fleiri kalla eftir því. Ég mun gera mitt besta til að skapa nauðsynleg verkfæri til að það sé hægt. Þegar stefnumálum Hreyfingarinnar verður náð getum við með góðri samvisku lagt hana niður, því þá hefur traust brú á milli þings og þjóðar verið smíðuð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun