Hefur Schengen og innganga í ESB stjórnarskrárbundin rétt að engu? Ástþór Magnússon skrifar 25. nóvember 2010 16:53 Ágæti Össur. Aðgerðir lögreglu á Íslensku Schengen landamærum Madrid um helgina vekja upp spurningar hvort framkvæmdarvaldið sé að fjarlægja mannréttindi sem varin eru í Stjórnarskrá Íslands. Einnig vakna upp spurningar hvort Schengen samstarfið og hugsanleg innganga í Evrópusambandið hafi stjórnarskrárbundin rétt einstaklingsins að engu. Undirritaður Ástþór Magnússon Wium er frambjóðandi Nr. 7176 til Stjórnlagaþings. Það sem rakið er hér að neðan er ógnvænleg áminning til okkar sem viljum takast á við að skrifa nýja stjórnarskrá að gæta þurfi að því, hugsanlega með refsiákvæðum í nýrri stjórnarskrá, að framkvæmdavaldið virði þann þjóðfélagsramma og mannréttindi sem þar er sett og gangist ekki undir erlent vald sem fjarlægirþennan rétt. Hér að neðan er lýsing á því hvernig ung kona sem starfar fyrir barnahjálp Friðar2000 var handtekin af landamæravörðum s.l. sunnudag. Vísað er til landamæranna sem Íslenskra landamæra vegna þess að þau eru síðasta vegabréfseftirlit á leið konunnar til Íslands. Með öðrum orðum, hvað sem regluverk framkvæmdavaldsins segir, er staðreyndin sú að um leið ferðamaðurinn kemur að umræddum Schengen landamærum er hann í raun komin að Íslenskum landamærum. Í meðhöndlun málsins brutu landamæraverðir á konunni fleiri greinar Íslensku stjórnarskrárinnar: 65.grein:Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. 66.grein:Með lögum skal skipað rétti útlendinga til að koma til landsins og dveljast hér, svo og fyrir hverjar sakir sé hægt að vísa þeim úr landi. 67.grein:Engan má svipta frelsi nema samkvæmt heimild í lögum. ...Hver sá sem er af öðrum ástæðum sviptur frelsi á rétt á að dómstóll kveði á um lögmæti þess svofljótt sem verða má. Reynist frelsissvipting ólögmæt skal hann þegar látinn laus. 70.grein:Öllum ber réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru áhendur sér um refsiverða háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli. 71.grein:Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. 72.grein:Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Forsaga málsins er að undirritaður stofnandi Friðar 2000 er að koma á fót verkefninu Earthchild.org til hjálpar heimilislausum börnum í Buenos Aires. Yfir fjögur þúsund börn gistanú götur borgarinnar matarlítil og við mikla örbyrgð. Vandamálið hefur nær tvöfaldast síðasta ár. Íslenska búsáhaldabyltingin sótti fyrirmynd sína til Argentínu en landið varð gjaldþrotaárið 2001. Hávær gagnrýni heyrist í Argentínu um aðkomu Alþjóða gjaldeyrissjóðinnsem sögð er hafa aukið bilið milli ríkra og fátækra með þeim afleiðingum að tugmilljónir manns eru nú atvinnulausir. Margir búa í hreisum í ört stækkandiskuggahverfum Buenos Aires. Vímuefnaneysla, ört vaxandi heimilisofbeldi og örbyrgð hrekur börnin að heiman á strætin. Unga konan sem starfar fyrir Frið 2000 í Buenos Aires ætlaði að ferðast til Evrópuað kynna verkefnið m.a. á Íslandi og í leiðinni halda jól með móður sinni og systkynum á Spáni. Konan ferðaðist á vegabréfi sem ekki krefst vegabréfs áritunar til Schengen svæðisins og á farmiða sem greiddur var að fullu af Íslensku félagi með Íslensku greiðslukorti. Heimferð frá Schengen var innan þriggja mánaða, 19 febrúar n.k. Þegar konan framvísaði vegabréfi sínu á Schengen landamærunum í Madrid, sem jafnframt eru landamæri Íslands, var hún beðin að sýna nægan gjaldmiðil til framfærslu. Henni var boðið að sýna landamæraverði stöðu bankareiknings í hraðbanka. Af einhverjum ástæðum kom upp tæknivilla í hraðbankanum. Skipti þá engum togum,konan var svipt frelsi og flutt nauðug í gæsluvarðhald. Tekinn var af henni handfarangur, sími og veski. Konan upplýsti um móður sína og tvö systkyni búsett á Spáni, en móðirin giftist til Spánar í kjölfar efnahagshruns Argentínu. Þegar skýringarnar voru ekki teknar til greina, óskaði konan að hafa samband við undirritaðann. Henni var synjað að tala við nokkurn utan fangageymslunnar fyrr en að lokinni yfirheyrslu. Síðanvar henni stillt upp framan við lögreglumann og svokallaðan lögmann sem lögreglan sjálf útvegaði. Skrifuð var skýrsla í engu samræmi við aðdraganda málsins eða málflutning konunnar. Í fjórar klukkustundir reyndi undirritaður síðan að ná símasambandi við landamæraeftirlitið. Lögreglan gaf upp tvö símanúmer en hvorugu var svarað.Haft var samband við varðstjóra landamæraeftirlits í Keflavík sem sagðist ekkert geta gert. Þeir hefðu enga möguleika, símanúmer eða annað til að eiga samskipti við landamæraverði Íslands í Madrid. Þá var fenginn lögfræðingur til að mæta á flugvöllinn með reiðufé og skjöl sem sönnuðu að konan hefði framfærslu meðan á dvöl hennar stæði.Landamæraeftirlitið tók engin rök gild. Búið væri að ákveða að konan skyldi nauðug send til baka á næstu vél. Einnig var synjað beiðni um sólarhrings frest á meðan leitað væri aðstoðar dómara svo og Íslenska ræðismannsins í Madrid sem staddur var á Ítalíu þennan dag en lýsti sig reiðubúinn að aðstoða strax og hann lenti um hádegi næsta dag. Lögfræðingurinn Pedro Munoz segir meðhöndlun konunnar á flugvellinum ekki standast lög. Starfsmaður Iberia flugfélagsins sagðist heldur ekkert geta gert. Gæti ekki talað við landamæraverðina frekar en aðrir. Vissu lítið hvernig staðið væri að aðgerðunum en heyrt að lögreglan væri nú með nýjar skipanir vegna efnahagskreppunnar.Tugir manns væru nú stöðvaðir daglega og sendir nauðugir til baka. Stundum nánast eins og tilviljanakennt á síðustu mínútum fyrir flug væri fólkinu sleppt. Þriggja manna teymi Íslendinga mætti á Madrid flugvöll áður en vélin fór í loftið, og krafðist viðtals við landamæraeftirlitið. Því var einnig synjað með þeim boðum að enginn fengi viðtal við landamæraverði. Aftur bent á sömu símanúmer og ekki svarað. Nokkrum mínútum fyrir brottför flutti síðan lögreglan ungu konuna ásamt sjö öðrum frelsissviptum einstaklingum um borð í vélina. Undirritaður átti í gær fund með ræðismanni Íslands í Madrid sem lagði til að skrifa utanríkisráðherra bréf um málið. Ræðismaðurinn sem hefur um árabil starfað sem lögmaður í Madrid segist reiðubúinn að leggja sitt af mörkum m.a. í gegnumpersónuleg sambönd sín innan stjórnsýslunnar í Madrid til að greiða götu konunnar óski hún að koma til baka, að því tilskyldu að ráðherra sig ekki upp ámóti því. Ég óska því eftir staðfestingu ráðherra um hæl, að hann sé ekki mótfallinn aðstoð ræðismanns Íslands í Madrid. Einnig óskað eftirfarandi upplýsinga eins fljótt og mögulegt er: 1.Hafa Íslensk stjórnvöld með aðild sinni að Schengen afsalað eða fórnað stjórnarskrárbundnum mannréttindum? 2.Mun innganga í Evrópusambandið leiða til afsals stjórnarskrárbundinna réttinda? 3.Telur ráðherra að þörf á að kanna hvernig framkvæmd landamæraeftirlits Schengen er háttað í erlendum höfnum? Telur ráðherra að sú framkvæmd snerti ferðamenn á leið sinni til Íslands? Hvernig vill ráðherra tryggja að þeir njóti mannréttinda og sanngjarnar málsmeðferðar? Telur ráðherra það t.d. eðlilegt verklag að Íslenskir landamæraverðir hafi enga samskiptamöguleika við þær hafnir sem ferðamenn á leið til landsins koma í gegnum. 4.Starfsmenn Iberia flugfélagsins og ræðismaður Íslands í Madrid lýstu því fyrir undirrituðum að í kjölfar efnahagshruns væri nú búið að herða mjög reglur um aðgengi ferðamanna til Spánar. Fjöldi löglegra ferðamanna væri stöðvaðir undir ýmsum tylliástæðum og sendir nauðugir til baka. Landamæraverðir fylgdu þessu eftir af einstakri hörku og ofangreint dæmi sem ég hef lýst væri ekkert einsdæmi. Telur ráðherra að slík málsmeðferð samræmist Íslensku þjóðfélagsmynstri og Íslenskri gestrisni? Að slík meðhöndlun ferðamanna sem réttindalausar skepnur og virðingarleysi fyrir fjölskyldutengslum þeirra samrýmist hagsmunum Íslenskrar ferðaþjónustu?Meðvinsemd og virðingu, Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Kyn og vægi líkamans Gunnar Snorri Árnason Skoðun Skólinn er ekki verksmiðja Kristinn Jón Ólafsson,Halldóra Mogensen Skoðun Bakslag í skoðanafrelsi? Kári Allansson Skoðun 76 dagar sem koma aldrei aftur Einar Guðnason Skoðun 60.000 auðir fermetrar Dagur B. Eggertsson Skoðun Umfjöllun Kastljóss Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Hvar er pabbi? Og aðrir stríðsglæpir Ísraels Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius Skoðun Kristinn átrúnaður á tímum þjóðarmorðs Bjarni Karlsson Skoðun Þjóð gegn þjóðarmorði – stéttarfélög hvetja til þátttöku Hópur formanna stéttarfélaga Skoðun Skoðun Skoðun Skóli án aðgreiningar - tékklisti fyrir stjórnvöld til að gera betur Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Fjöldi kynja – treystir þú þér í samtalið með velferð barna að leiðarljósi? Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar Skoðun Ókeypis minnisblað fyrir Alþingi: Jafnrétti er ekki skoðun- en umræðan er það Sigríður Ásta Hauksdóttir skrifar Skoðun Segðu skilið við sektarkenndina Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius skrifar Skoðun Lög um vinnu og virknimiðstöðvar Atli Már Haraldsson skrifar Skoðun Áfram Breiðholt og Kjalarnes! Skúli Helgason skrifar Skoðun Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Vesturlönd mega ekki leyfa Pútín að skrifa leikreglurnar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Umfjöllun Kastljóss Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gulur september María Heimisdóttir skrifar Skoðun Kyn og vægi líkamans Gunnar Snorri Árnason skrifar Skoðun Sakborningur hjá saksóknara Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Reiði á tímum allsnægta Jökull Gíslason skrifar Skoðun 60.000 auðir fermetrar Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Kristinn átrúnaður á tímum þjóðarmorðs Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Tölur segja ekki alla söguna Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Skólinn er ekki verksmiðja Kristinn Jón Ólafsson,Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Enn úr sömu sveitinni Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Palestínsk börn eiga betra skilið Anna Lúðvíksdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stjórn Eflingar lýsir yfir samstöðu með palestínsku þjóðinni og fordæmir þjóðarmorð á Gaza Hópur stjórnarmanna í Eflingu skrifar Skoðun Þjóð gegn þjóðarmorði – stéttarfélög hvetja til þátttöku Hópur formanna stéttarfélaga skrifar Skoðun Umferðaröryggi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar er pabbi? Og aðrir stríðsglæpir Ísraels Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Meira að segja Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 76 dagar sem koma aldrei aftur Einar Guðnason skrifar Skoðun Er popúlismi kenning um siðferði? Einar Gísli Gunnarsson skrifar Skoðun Umferðaröryggi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ákalli um samræmingu í eftirliti svarað Lilja Björk Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius Skoðun
Skoðun Skóli án aðgreiningar - tékklisti fyrir stjórnvöld til að gera betur Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar
Skoðun Fjöldi kynja – treystir þú þér í samtalið með velferð barna að leiðarljósi? Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar
Skoðun Ókeypis minnisblað fyrir Alþingi: Jafnrétti er ekki skoðun- en umræðan er það Sigríður Ásta Hauksdóttir skrifar
Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius skrifar
Skoðun Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Stjórn Eflingar lýsir yfir samstöðu með palestínsku þjóðinni og fordæmir þjóðarmorð á Gaza Hópur stjórnarmanna í Eflingu skrifar
Skoðun Þjóð gegn þjóðarmorði – stéttarfélög hvetja til þátttöku Hópur formanna stéttarfélaga skrifar
Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius Skoðun