Íslensk heimili þurfa að losna við krónuna Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir skrifar 3. desember 2010 05:00 Hver kannast ekki við að setja greiðsluyfirlit lánasamninga, sem sýna afborganir húsnæðislána allan lánstímann og heildarendurgreiðslur, ofan í skúffu eftir að lán hefur verið tekið, án þess að lesa það? Kannski kannast einhver líka við að botna hvorki upp né niður í greiðsluseðli húsnæðislánsins sem kemur í pósti um hver mánaðamót? Jafnvel þó að við skiljum greiðsluseðlana og greiðsluyfirlitin þá er erfitt að meðtaka tölurnar sem þar koma fram, þær eru óbærilega háar. Það var afar fróðlegt að lesa grein Guðsteins Einarssonar, kaupfélagsstjóra í Borgarnesi, í Pressunni 2. september sl., þar sem hann fjallar um þær miklu byrðar sem lagðar eru á heimili landsins, vegna þess mikla aukakostnaðar sem krónan veldur, umfram það sem er innan evrunnar. Þetta stafar af því hversu örsmá krónan er (gata í stórborg), sem aftur skapar miklar sveiflur og áhættu, eins og þjóðin hefur mátt kynnast undanfarið. Þessi kostnaður jafngildir því að sá sem tekur 20 milljón króna íbúðarlán, til 25 ára, borgar um 105 þúsund meira á mánuði í 25 ár á Íslandi en ef hann væri í landi með evru. Á 25 árum nemur sú upphæð 32 milljónum. Hér er þó ekki öll sagan sögð.Mestu kaupmáttartækifærin Þessi upphæð, 105 þúsund krónur, er tala eftir skatta, þar sem hún er útlagður kostnaður. Þetta þýðir að viðkomandi einstaklingur þarf að hafa um 160 þúsund króna tekjur á mánuði fyrir skatta til greiðslu á kostnaðinum, sem fer í að halda uppi íslensku krónunni. Ef þetta er sett í annað samhengi, þá má benda á að meðaltekjur á Íslandi eru tæpar 400 þúsund krónur. Ef þessar 160 þúsund krónur, sem er 40% af launum fyrir skatta, vegna mánaðarlegs kostnaðar krónunnar, eru dregnar frá eru tekjur næstum því helmingi lægri - eða 240 þúsund! Ef skattar eru um 130 þúsund, þá eru ráðstöfunartekjur eftir skatta 270 þúsund til að lifa af. Af þessum 270 þúsundum fara 105 þúsund í krónuskatt eða um 40% af ráðstöfunartekjunum þannig að eftir eru einungis 165 þúsund! Ef hægt væri að losna við þetta 105 þúsund króna þrælaálag krónunnar með upptöku evru væri það mesta kaupmáttaraukning sem nokkurntíma hefði orðið. Kaupmátturinn myndi aukast um 40% fyrir þennan einstakling án þess að íþyngja atvinnulífi - þvert á móti myndi krónuskattinum einnig verða aflétt af atvinnulífinu.10 ár í hlekkjum og þrælabúðum krónunnar Ef síðan er reiknað hvað það tekur langan tíma að vinna fyrir þessum skelfilega krónuskatti kemur eftirfarandi í ljós. Dæmið er einfalt: 40% af launum fara í þrælaálag krónunnar - og því fara einnig 40% tímans í þennan skatt. Þetta jafngildir 3,2 tímum á dag, 2 dögum á viku, 8 dögum á mánuði, 5 mánuðum á ári. Sé valinn lengri afborgunartími en 25 ár verður þrældómurinn sömuleiðis lengri. Til þess að ráða við þessa greiðslubyrði verða í flestum tilfellum að vera tvær fyrirvinnur á hverju heimili. Þessar tölur jafngilda því að einstaklingur á Íslandi borgar í raun tvö hús fyrir eitt, á meðan einstaklingur innan evrulands borgar einungis fyrir eitt.Grafið undan sjálfstæðinu Lántökur Íslendinga í erlendri mynt sem hófust í kringum árið 2005 voru í raun ekkert annað en flótti undan íslenskum lánakjörum, vöxtum og verðbólgu. Kostnaður við að halda uppi allt of litlum gjaldmiðli - krónunni - sem kemur fram í háum vöxtum, verðbólgu og verðtryggingu - jafngildir sambærilegri upphæð og íbúðin eða húsið sem keypt er. Ónýtur gjaldmiðill er því að sá þáttur sem mest hefur grafið undan efnahagslegu sjálfstæði Íslendinga á umliðnum árum, og þar með sjálfstæði þjóðarinnar. Það er mál til komið að snúa af þeirri leið.Hagsmunamat Hafa ber í huga í umræðum um ESB að um er að ræða samband sjálfstæðra ríkja sem upphaflega er stofnað til til að tryggja frið og frjáls viðskipti innan Evrópu. Innan Evrópusambandsins virkar ákveðið samtryggingakerfi sem eftirsóknarvert er að vera innan en erfitt er að standa utan. Það eru hagsmunir sambandsins að öllum aðildarríkjunum vegni vel, lög og reglur séu virtar á milli þeirra og að ríkin séu sjálfbær. Það er ekki með nokkru móti hægt að halda því fram að Evrópusambandið hafi áform um annað en að Íslandi og Íslendingum vegni sem allra best. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Bakslag í skoðanafrelsi? Kári Allansson Skoðun Ofbeldi í skólum: Áskoranir og leiðir til lausna Soffía Ámundadóttir Skoðun Ein saga af sextíu þúsund Halldór Ísak Ólafsson Skoðun Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir Skoðun Að láta mata sig er svo þægilegt Björn Ólafsson Skoðun Snorri Másson er ekki vandinn – hann er viðvörun Helen Ólafsdóttir Skoðun Símafrí á skólatíma Guðmundur Ingi Kristinsson Skoðun Ástin er falleg Sigurður Árni Reynisson Skoðun Boðsferð Landsvirkjunar Stefán Georgsson Skoðun Grunnstoðir sveitarfélagsins efldar til muna Sandra Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Símafrí á skólatíma Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Ömurlegur fyrri hálfleikur – en er enn von? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Vitund, virðing og von: Jafningjastuðningur í brennidepli Nína Eck skrifar Skoðun Hingað og ekki lengra – Um þögnina sem styður ofbeldi Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Ein saga af sextíu þúsund Halldór Ísak Ólafsson skrifar Skoðun Að láta mata sig er svo þægilegt Björn Ólafsson skrifar Skoðun Nýjar reglur um réttindi fólks í ráðningarsambandi Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Ofbeldi í skólum: Áskoranir og leiðir til lausna Soffía Ámundadóttir skrifar Skoðun Bakslag í skoðanafrelsi? Kári Allansson skrifar Skoðun Eplin í andlitshæð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Bataskólinn – fyrir þig? Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir skrifar Skoðun Boðsferð Landsvirkjunar Stefán Georgsson skrifar Skoðun Samstarf um loftslagsmál og grænar lausnir Sigurður Hannesson,Nótt Thorberg skrifar Skoðun Ástin er falleg Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Líknarmeðferð og dánaraðstoð eru ekki andstæður heldur nauðsynleg umræðuefni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Grunnstoðir sveitarfélagsins efldar til muna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Laugarnestangi - til allrar framtíðar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Að vera séður og heyrður getur bjargað lífi – Gulur september minnir okkur á að hlúa að hjartanu Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur um atburðina á Gaza Egill Þ. Einarsson skrifar Skoðun Öryggi geðheilbrigðis Guðrún Karls Helgudóttir skrifar Skoðun Mjóddin og pólitík pírata Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Okkar eigin Don Kíkóti Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Sýnum í verki að okkur er ekki sama Anna Sigga Jökuls Ragnheiðardóttir skrifar Skoðun Snorri Másson er ekki vandinn – hann er viðvörun Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Drúsar og hörmungarnar í Suwayda Armando Garcia skrifar Skoðun Hjarta samfélagsins í Þorlákshöfn slær við höfnina Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Marserum fyrir jafnrétti í íþróttum Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Tímamóta umbætur í nýju kerfi almannatrygginga Huld Magnúsdóttir,Sigríður Dóra Magnúsdóttir,Unnur Sverrisdóttir,Vigdís Jónsdóttir skrifar Skoðun Öflugt atvinnulíf í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Sjá meira
Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir Skoðun
Skoðun Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir skrifar
Skoðun Líknarmeðferð og dánaraðstoð eru ekki andstæður heldur nauðsynleg umræðuefni Ingrid Kuhlman skrifar
Skoðun Að vera séður og heyrður getur bjargað lífi – Gulur september minnir okkur á að hlúa að hjartanu Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Tímamóta umbætur í nýju kerfi almannatrygginga Huld Magnúsdóttir,Sigríður Dóra Magnúsdóttir,Unnur Sverrisdóttir,Vigdís Jónsdóttir skrifar
Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir Skoðun