Segir Evu Joly hafa spillt Exeter-málinu 9. október 2010 08:30 Sakborningur og verjandi. Styrmir Þór neitar alfarið sök í málinu og Ragnar Hall, lögmaður hans, hefur krafist þess að málinu verði vísað frá.Fréttablaðið/anton
Lögmaður fyrrverandi forstjóra MP banka segir Evu Joly hafa mælt fyrir um óhefðbundnar rannsóknaraðgerðir í svokölluðu Exeter-máli og þær hafi í ýmsum tilvikum leitt til ólögmætra aðgerða við rannsóknina. Vísa beri málinu frá vegna þess að sérstakur saksóknari hafi ekki haft lögbundið sjálfstæði í störfum sínum. Hann hefur sent ráðherrum bréf vegna málsins. Þetta kemur fram í greinargerð sem Ragnar H. Hall, lögmaður Styrmis Þórs Bragasonar, hefur lagt fram í málinu og Fréttablaðið hefur undir höndum. Exeter-málið svokallaða er hið eina sem sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru í. Það snýst um ríflega eins milljarðs lánveitingar Byrs til félagsins Exeter Holdings fyrir kaupum á stofnfjárbréfum í sparisjóðnum, af MP banka og stjórnarmönnum í sjóðnum. Auk Styrmis eru Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, og Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri, ákærðir í málinu. Allir sakborningar hafa neitað sök og krafist þess að málinu verði vísað frá. Ragnar er gagnrýninn á störf Joly og segir hana hafa fengið víðtækara verksvið en almennt sé gert ráð fyrir í lögum um ráðgjafa sérstaks saksóknara. „Hér var gengið svo langt í þeim efnum, að „ráðgjafinn“ virðist hafa fengið einhvers konar allsherjarvald yfir embætti sérstaks saksóknara og gat gefið honum og ríkisstjórn landsins nánast bindandi fyrirmæli um hvað eina sem hún teldi þjóna rannsóknarhagsmunum í hinum ýmsu málum,“ segir Ragnar. Gögn sýni að „yfirsaksóknarinn“, eins og Ragnar kallar Joly, hafi mælt fyrir um „óhefðbundnar rannsóknaraðgerðir“ sem hafi leitt til ólögmætra aðgerða. Hann hefur ritað forsætis-, dómsmála- og fjármálaráðherra bréf um málið þar sem hann krefst meðal annars afrita af öllum samningum sem gerðir hafi verið við Joly um samvinnu við íslensk yfirvöld. Þegar greinargerðin var lögð fram á fimmtudag í síðustu viku höfðu svör borist frá forsætis- og dómsmálaráðuneytunum. stigur@frettabladid.is
Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Sjá meira