Hefði ekki verið aukakast í öðrum leikjum Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Vín skrifar 26. janúar 2010 13:30 Guðmundur Guðmundsson fagnar sigri á Dönum. Mynd/DIENER/Leena Manhart
Svíar voru ekki hrifnir af dómgæslunni í leik Króatíu og Íslands í gær ef marka má pistil Patrick Ekwall á Nyhetskanalen í gær.Hann segir það erfitt að hrífast ekki af íslenska landsliðinu. Liðið nær alltaf að berjast um stóru titlana í handboltaheiminum, sama hversu fámenn íslenska þjóðin er.„Fyrst unnu þeir Danmörku hér í Austurríki og það leit lengi vel út fyrir að þeir myndu líka vinna Króatíu," skrifaði hann.„Þeir voru lengi með forystuna í leiknum, allt þar til dómarar leiksins (Tékkar) byrjuðu að týna hvern Íslendinginn á fætur öðrum út af í tveggja mínútna brottvísun - fyrir brot sem hefðu varla verðskuldað aukakast í sumum leikjum."„Dómararnir voru fyrst ánægðir þegar Króatar voru búnir að jafna leikinn - kemur þetta einhverjum í handboltaheiminum á óvart?"Hann segir enn fremur að Íslendingar eigi enn góðan möguleika á sæti í undanúrslitum. Liðið hafi sýnt mikinn kraft og vilja á mótinu.Greinarhöfundur notar svo tækifærið og skýtur lúmsku skoti á sænska landsliðið sem tapaði öllum sínum leikjum í riðlakeppninni.„Það eina sem er líkt með íslenska landsliðinu og því sænska er að Ólafur Stefánsson er ótrúlega líkur Fredrik Berling hjá sænska ríkissjónvarpinu."
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Hljóp á hraðasta tíma ársins Sport Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira