Skoðun

Hvað þarf til að ríkisstjórn vakni?

Halldór Úlfarsson skrifar

Ríkisstjórn Íslands er að fara dýrustu og verstu leið sem hægt er að fara í málefnum heimilanna. Ef þessi „endanlega" leið sem nú er verið að fara er svona útpæld og góð, af hverju var hún ekki farin fyrir tveimur árum þegar þau tóku við? Nei, þetta er bara ein vitleysan enn; eitt af 50 úrræðum „eftir helgi stjórnarinnar".

Það var svo gaman hjá þeim þegar þau tóku við. Steingrímur fór á fullt í Icesave og Samfylkingin á fullt í ESB, en þau gleymdu aðalatriðinu, sem voru heimili landsins og atvinnulífið. Ef það er eitthvað sem ætti að rannsaka hér á Íslandi um þessar mundir, þá er það verkleysi og vankunnátta ríkis­stjórnarinnar síðustu tvö ár. Það er nefnilega þannig að þegar mjólkin er súr eða vond þá hellir maður henni niður eða hendir henni. Ríkisstjórnin sem nú situr minnir mann ansi mikið á vondu og súru mjólkina. Það er grátlegt að horfa upp á getuleysi hennar í flestum málum. Nú veit ég að þetta eru ekki nýjar fréttir, en þetta er bara svona og það vita allir Íslendingar nema þingmenn VG og Samfylkingar. Ólína Þorvarðardóttir talar um „úrtölufólk" og þessi sama Ólína sagði einhvers staðar að hún vissi ekki hvað þetta fólk (8 þúsund manns) væri að gera fyrir utan Alþingishúsið 4. okt. sl. Mig langar að segja frú Ólínu að þetta fólk var þarna fyrst og fremst að mótmæla getuleysi ríkisstjórnarinnar í málefnum heimilanna.

Annað finnst mér svo ótrúlegt í þessu öllu en það er hvernig fréttamiðlar teikna þetta upp aftur og aftur. Tökum dæmi. Ríkisstjórnin þykist vera með enn eitt snilldar úrræðið og fréttamiðlarnir birta allt ádeilulaust eða í versta falli spyrja þeir Þórólf Mattíasson um hans álit á dellunni og ef einhver segir eitthvað annað en hann þá er það alltaf alveg galin hugmynd. Þingmaðurinn Magnús Orri talar um lýðskrum og svo er alveg yndis­legt þegar Árni Páll og Jóhanna tala um samfélagslega ábyrgð eða með öðrum orðum: Gerið eins og við segjum hversu vitlaust sem það er og sýnið með því sam­félagslega ábyrgð. Þau eru búin að hafa öll tækifæri í heiminum síðustu tvö ár til þess að taka á lánamálum heimilanna og koma á friði í landinu en þau kjósa áframhaldandi stríð við sitt eigið fólk.

Þessi ríkisstjórn hlýtur að hrökklast frá völdum fljótlega og ég skil reyndar ekki hvernig hægt er að stjórna landinu svona illa. Þau áttu að taka á þessum lánamálum strax og þau tóku við. Leiðin sem þau eru að fara núna á eftir að verða þjóðinni miklum mun dýrari þegar upp er staðið.






Skoðun

Sjá meira


×