Einar: Þetta var lélegt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. september 2010 20:24 Einar Jónsson, þjálfari Fram.
Einar Jónsson, þjálfari Fram, var ekki ánægður með það sem hann sá í leik sinna manna gegn Val í Meistarakeppni HSÍ í kvöld. Valur vann leikinn, 25-23, eftir að Fram hafði verið með forystuna í hálfleik, 12-10. Íris Björk Símonardóttir fór á kostum í fyrri hálfleik og varði þá fimmtán skot. „Þetta var bara arfaslakt og við hefðum getað stungið þær af í fyrri hálfleik þar sem við vorum að spila þó mun betur en við gerðum í þeim síðari," sagði Einar. „Við vorum að fara illa með dauðafæri og við vorum klaufar að vera ekki 4-5 mörkum eða meira yfir í hálfleik. Það var allt til staðar til þess." „En við leyfðum þeim að hanga inn í leiknum. Svo í seinni hálfleik var þetta mjög lélegt hjá okkur. Það verður að segjast eins og er. Valur átti skilið að vinna. Þær voru tilbúnar í þennan leik og börðust fyrir sigrinum." Valur er Íslandsmeistari og Fram bikarmeistari og Einar segir að leikir liðanna verði sjálfsagt áfram spennandi í vetur. „Þetta eru sennilega tvö bestu liðin í deildinni og jú, sjálfsagt eiga þetta eftir að vera spennuleikir. En þetta var ekki rismikið í kvöld, sérstaklega ekki hjá mínu liði. Þetta var í raun mjög lélegt þegar á heildina er litið."
Olís-deild kvenna Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sjá meira